Fara í efni

Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026

Málsnúmer 202606163

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Múlaþings - 70. fundur - 01.07.2026

Fyrir liggur þingsályktun, sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 2026, um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst 2026 og liggur fyrir sveitarstjórn að taka ákvarðanir og bóka samþykki sitt um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar innan sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að kjörstaðir vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 verði eftirfarandi:

Borgarfjörður: Grunnskólinn á Borgarfirði. Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilsstöðum. Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði.

Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að kjördeildir við atkvæðagreiðsluna verði fimm talsins, þar af tvær á Fljótsdalshéraði. Kjördeildirnar á Fljótsdalshéraði skiptast þannig: Í kjördeild 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum M. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum N til og með bókstafnum Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og íbúar í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.

Sveitarstjórn samþykkir að óska eftir því við sýslumann að hægt verði að kjósa utan kjörfundar í atkvæðagreiðslunni á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði og Djúpavogi, frá og með 13. ágúst til og með 28. ágúst 2026.

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að óska eftir því við sýslumann að kjörstjórar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu verði Alda Marín Kristinsdóttir, Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar og Þórunn Ólafsdóttir á Borgarfirði og Rúnar Matthíasson og Greta Mjöll Samúelsdóttir á Djúpavogi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?