Fara í efni

Deiliskipulag, Votihvammur, undirskriftarlisti, Austurtún og Fífutún, 700

Málsnúmer 202606186

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 187. fundur - 29.06.2026

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði er lagt fram erindi ásamt undirskriftalista íbúa þar sem þess er krafist að fallið verði frá fyrirhugaðri byggingu tveggja hæða húss við Fífutúni 2 (L234902), að ekki verði reist fleiri tveggja hæða hús neðan við Fífutún og Austurtún og að gildandi deiliskipulag fyrir hverfið verði tekið til endurskoðunar. Í erindinu er jafnframt bent á að fyrirhuguð uppbygging falli, að mati undirritaðra, ekki nægilega að ásýnd og byggðarmynstri hverfisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir framlagt erindi og hefur farið yfir þau sjónarmið sem þar koma fram.

Ráðið bendir á að fyrirhuguð bygging við Fífutún 2 (L234902) er í samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins. Deiliskipulagið hefur hlotið lögbundna málsmeðferð og tekið gildi samkvæmt skipulagslögum.
Að teknu tilliti til þess sér ráðið ekki tilefni til að hefja endurskoðun deiliskipulags svæðisins og hafnar því þeirri kröfu sem fram kemur í erindinu.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?