Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

187. fundur 29. júní 2026 kl. 13:00 - 16:16 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Þórhallur Borgarsson aðalmaður
  • Þórir Stefánsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Í upphafi fundar lagði formaður fram tillögu um að bæta við máli til kynningar á dagskrá, fundarlið nr. 10, "Bókasafn - skrifstofur í Herðubreið á Seyðisfirði, starfshópur".

Tillagan var borin upp og samþykkt samhljóða.

1.Fjárfestingaráætlun 2026

Málsnúmer 202508196Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda kynnir endurskoðaða fjárfestingaráætlun Múlaþings fyrir árið 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðar breytingar á fjárfestingaráætlun ársins.

Samþykkt samhljóða.

2.Deiliskipulag, Kollsstaðasel, frístundabyggð, 701

Málsnúmer 202510198Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að nýju deiliskipulagi vegna Kollsstaðasels (L157596) ofan Egilsstaða, dags. 22. júní 2026. Skipulagsáætlunin er unnin af Landslagi ehf fyrir hönd Ólafs Jónssonar sem er framkvæmdaraðili.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti að fyrirliggjandi skipulagsáætlun verði kynnt í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Málinu er vísað til heimastjórnar Fljótsdalshéraðs til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða.

3.Deiliskipulagsbreyting, frístundabyggð við Unalæk, Álfagata 5, 701

Málsnúmer 202606092Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Unalækjar á Völlum vegna byggingaráforma á Álfagötu 5. Tillagan er unnin af Birni Sveinssyni fyrir hönd lóðarhafa.

Skipulagstillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits, þ.e. að afmarka ytri byggingarreit, og samhliða að fjölga fjölda bygginga á lóðinni. Á ytri byggingarreit verði heimilar byggingar undir þjónustustarfsemi td. gistirekstur. Heildarbyggingarmagn helst óbreytt í 1.000 m2, en fjöldi bygginga fari úr fimm í átta.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að taka afstöðu til málsmeðferðar og grenndarkynningar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi Unalækur - Völlum Múlaþingi, frístunda- og íbúðabyggð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin verði grenndarkynnt fyrir fasteignaeigendum við Stekkjabrekku 10 (L238332), Unalækur /lóð 4 (L208631), Álfagötu 1 (L238316), 2 (L238319), 3 (L238320) og 4 (L238323), í samræmi við gr. 5.8.2 í skipulagsreglugerð.
Málið verður tekið fyrir að nýju að grenndarkynningu lokinni.

Samþykkt samhljóða.

4.Deiliskipulag, Votihvammur, undirskriftarlisti, Austurtún og Fífutún, 700

Málsnúmer 202606186Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði er lagt fram erindi ásamt undirskriftalista íbúa þar sem þess er krafist að fallið verði frá fyrirhugaðri byggingu tveggja hæða húss við Fífutúni 2 (L234902), að ekki verði reist fleiri tveggja hæða hús neðan við Fífutún og Austurtún og að gildandi deiliskipulag fyrir hverfið verði tekið til endurskoðunar. Í erindinu er jafnframt bent á að fyrirhuguð uppbygging falli, að mati undirritaðra, ekki nægilega að ásýnd og byggðarmynstri hverfisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir framlagt erindi og hefur farið yfir þau sjónarmið sem þar koma fram.

Ráðið bendir á að fyrirhuguð bygging við Fífutún 2 (L234902) er í samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins. Deiliskipulagið hefur hlotið lögbundna málsmeðferð og tekið gildi samkvæmt skipulagslögum.
Að teknu tilliti til þess sér ráðið ekki tilefni til að hefja endurskoðun deiliskipulags svæðisins og hafnar því þeirri kröfu sem fram kemur í erindinu.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsýsla með lönd og lóðir í einkaeigu, Unalækur, 701

Málsnúmer 202606134Vakta málsnúmer

Fyrir liggja merkjalýsingar ásamt umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá úr landi Unalækjar (L157565) og Unalækjar lóð 4 (L208631), á Völlum. Nýjar fasteignir fá staðföngin Stekkjarbrekka 2, Stekkjarbrekka 4, Stekkjarbrekka 6, Stekkjarbrekka 8, Stekkjarbrekka 9, Stekkjarbrekka 11 og Stekkjarbrekka 12.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

6.Byggingarnefnd - framkvæmdir, Safnahús á Egilsstöðum áfangi 2

Málsnúmer 202211078Vakta málsnúmer

Byggingarnefnd Safnahúss á Egilsstöðum hefur starfað samkvæmt erindisbréfi sem samþykkt var á 77. fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 20. febrúar 2023.
Vegna sveitarstjórnarkosninga og upphafs nýs kjörtímabils, þarf að endurskipa í starfshópinn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir eftirfarandi fulltrúa í hópinn:
Hannes Karl Hilmarsson fyrir M-Lista og Þórhallur Borgarson fyrir D-lista sem einnig verður formaður.

Samþykkt samhljóða.

7.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Starfshópur um framtíð Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum hefur starfað samkvæmt erindisbréfi sem samþykkt var á 169. fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Vegna sveitarstjórnarkosninga og upphafs nýs kjörtímabils, þarf að endurskipa í starfshópinn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð tilnefnir Þórhildi Katrínu Stefánsdóttur sem aðalmann og Glúm Björnsson sem varamann.

Samþykkt samhljóða.

8.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, framkvæmdaáætlun 2026-

Málsnúmer 202603088Vakta málsnúmer

Alda Marín, verkefnastjóri atvinnumála, situr fundinn undir þessum lið og kynnir fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði framkvæmdaáætlunina.
Lagt fram til kynningar.

9.Umsagnarbeiðni. Umhverfismatsskýrsla, Vindmyllur við Lagarfossvirkjun

Málsnúmer 202606047Vakta málsnúmer

Fyrir liggur mat á umhverfisáhrifum vegna áforma Orkusölunnar um að reisa tvær vindtúrbínur með allt að 9,9 MW framleiðslu við Lagarfoss. Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun óskaði eftir umsögn sveitarfélagsins á grundvelli 23. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 með fresti til athugasemda til og með 17. júlí 2026.
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs afgreiddi málið á fundi sínum þann 25. júní síðast liðinn og er afgreiðsla hennar lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.


Fulltrúar V-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
VG og óháð taka undir þær athugasemdir sem fram koma í umsögn heimastjórnar Fljótsdalshéraðs um umhverfismatsskýrslu vegna fyrirhugaðra vindtúrbína við Lagarfossvirkjun, meðal annars varðandi skort á heildstæðu mati á verndargildi svæðisins, samfélagsáhrifum og samráði við íbúa áhrifasvæðisins.

VG og óháð telja þó að ganga þurfi lengra í mati á áhrifum framkvæmdarinnar, sérstaklega með tilliti til áhrifa á fuglalíf innan mikilvægs fuglasvæðis á Úthéraði, samlegðaráhrifa annarra fyrirhugaðra orkuframkvæmda og áhrifa á landslag, víðerni og náttúruupplifun á Austurlandi.

Með vísan til varúðarreglu náttúruverndar telja VG og óháð að veruleg óvissa sé enn til staðar um umhverfisáhrif framkvæmdarinnar og leggjast því gegn fyrirhugaðri uppbyggingu. VG og óháð munu jafnframt skila inn sérstakri umsögn þar sem þessi sjónarmið verða útlistuð.

10.Bókasafn - skrifstofur í Herðubreið á Seyðisfirði, starfshópur

Málsnúmer 202601142Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda kynnti fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði teikningar af efri hæð á Herðubreið, þangað sem bæjarskrifstofur Múlaþings á Seyðisfirði sem og bókasafn Seyðisfjarðar munu flytjast.
Lagt fram til kynningar.

Fulltrúar V-lista (ÁMS og GB) og L-lista (HRE) leggja fram eftirfarandi bókun:
Eftir að ráðið óskaði eftir að þessi liður kæmi inn á dagskrá fundarins til kynningar og ekki lágu fyrir gögn fyrir fundinn, teljum við að gögn er varða þessa framkvæmd hefðu þurft að koma fyrr inn á borð ráðsins og heimastjórnar Seyðisfjarðar, enda hafa breytingar af þessu tagi mikil og mótandi áhrif á vinnuumhverfi og aðstöðu í bæjarkjarnanum.
Við munum óska þess að þetta verði tekið upp af Byggðaráði.

Fundi slitið - kl. 16:16.

Getum við bætt efni þessarar síðu?