Fara í efni

Hraðakstur á Borgarfjarðarvegi, gegnum Eiða.

Málsnúmer 202607114

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 189. fundur - 17.08.2026

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi dagsett 30. júní 2026, frá Þórhalli Pálssyni íbúa á Eiðum í Eiðaþinghá, vegna hraðaksturs í gegnum byggðina. Einnig varðar erindið lýsingu á veginum, en hennar er ábótavant.
Erindið barst svæðisstjóra Vegagerðarinnar, sveitastjóra Múlaþings og lögreglustjóranum á Austurlandi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið og tekur undir áhyggjur íbúa.
Ráðið skorar á Vegagerðina að koma upp þéttbýlishliðum og öðrum hraðalækkandi aðgerðum við Eiða og aðra þéttbýlisstaði í sveitarfélaginu, auk þess að koma upp lýsingu á Eiðum. Ráðið skorar einnig á lögreglustjórann á Austurlandi að bregðast við hraðakstri.

Ráðið vísar í dagskrárlið nr 10, þar sem Vegagerðin sendir inn erindi um gott samstarf á milli sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar, og telur góða byrjun á því samstarfi að koma á hraðalækkandi aðgerðum.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?