- Þjónusta
- Mannlíf
- Stjórnsýsla
- Sveitarstjórn, ráð og stjórnir
- Sveitarstjóri
- Sveitarstjórn
- Byggðarráð
- Fjölskylduráð
- Umhverfis- og framkvæmdaráð
- Heimastjórn Borgarfjarðar
- Heimastjórn Djúpavogs
- Heimastjórn Fljótsdalshéraðs
- Heimastjórn Seyðisfjarðar
- Ungmennaráð
- Öldungaráð
- Samráðshópur, málefni fatlaðs fólks
- Yfirkjörstjórn
- Stjórn HEF veitna
- Sameiginlegar nefndir og stjórnir
- Fundadagatal allra nefnda og ráða
- Fundargerðir ráða og nefnda
- Skipurit stjórnsýslunnar
- Reglur, samþykktir og stefnur
- Starfsemin
- Persónuvernd
- Fjármál
- Útgefið efni og auglýsingar
- Byggðarkjarnar
- Kosningar
- Sveitarstjórn, ráð og stjórnir
- Mínar síður
Ráðið hefur kynnt sér fyrirliggjandi áform um breytingar á byggingarleyfis- og eftirlitskerfi mannvirkja. Ráðið telur að áður en ráðist verður í svo umfangsmikla kerfisbreytingu þurfi að liggja fyrir traustari greining á fjárhagslegum, stjórnsýslulegum og samfélagslegum áhrifum hennar.
Sérstaklega þarf að skýra:
- hvaða lögbundnu verkefni verða áfram hjá byggingarfulltrúum sveitarfélaga og hvaða tekjustofnar eiga að standa undir þeim
- áhrif miðstýringar og einkavæðingar eftirlits á aðgengi íbúa og fyrirtækja að þjónustu, einkum utan höfuðborgarsvæðisins
- heildarkostnað leyfishafa vegna yfirferðar hönnunargagna, verkstaðaskoðana, ferðakostnaðar, endurskoðunar gagna, endurtekinnar skoðunar og mögulegra tafa þeim tengt
- hvort fyrirhugað áhættumiðað eftirlit leiði til þess að stór hluti minni mannvirkja verði í reynd án reglubundins ytra eftirlits
- kostnað og áhrif nýrra krafna, meðal annars vegna, eftirlits, lífsferilsgreininga mannvirkja ásamt eftirlits eftir að mannvirki hafa verið tekin í notkun.
Ráðið mótmælir því að tekjur, kostnaður og ábyrgð færist frá sveitarfélögum til HMS án þess að sýnt hafi verið fram á raunverulega einföldun eða lægri heildarkostnað. Þá verður að tryggja að breytingarnar auki ekki fjarlægð íbúa og fyrirtækja frá opinberri þjónustu né skapi ójafnt aðgengi að eftirlitsþjónustu eftir búsetu.
Ráðið telur því ekki tímabært að taka endanlega afstöðu til fyrirhugaðrar kerfisbreytingar fyrr en framangreind áhrif hafa verið metin með fullnægjandi og rekjanlegum hætti.
Ráðið felur Þórhildi D-lista og Glúmi V-lista ásamt starfsmönnum að skerpa á fyrirliggjandi drögum að umsögn og leggur til að þau verði send í samráðsgáttina að lokinni yfirferð.
Samþykkt samhljóða.