Fara í efni

Útikennslustofa, verksummerki HEF, Borgarfjörður eystri

Málsnúmer 202608126

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Borgarfjarðar - 72. fundur - 07.09.2026

Í upphafi máls vakti Óttar Már Kárason athygli á mögulegu vanhæfi sínu. Var það borið upp og fellt með öllum greiddum atkvæðum.

Fyrir liggur bréf deildarstjóra leik- og grunnskóla Borgarfjarðar, dagsett 20. ágúst 2026, vegna skemmda á útinámssvæði skólans neðan við vatnstank þorpsins. Við framkvæmdir HEF við vatnslögn í sumar hurfu 20 til 30 trjáplöntur og gróðri var raskað. Skólinn hefur nýtt svæðið til útináms í um 15 ár og byggt þar upp aðstöðu og gróður með nemendum, meðal annars með trjáplöntum úr Yrkjusjóði.
Heimastjórn tekur undir með deildarstjórum leik- og grunnskóla Borgarfjarðar og þykir mjög miður hvernig HEF veitur hafa gengið um útikennslusvæði barnanna við framkvæmdirnar í sumar og þakkar fyrir spurningarnar.
Svæðið er óskilgreint en heimastjórn telur að best færi á ef svæðið yrði nánar skilgreint eftir notkun og mun koma því í farveg. Þegar farið er í framkvæmdir sem þessar er mikilvægt að leitað sé til heimafólks og tekið tillit til ábendinga þeirra. Heimastjórn beinir því til HEF veitna að lagfæra skemmdir á svæðinu í samráði við þjónustumiðstöð og deildarstjóra leik- og grunnskóla Borgarfjarðar.
Heimastjórn undirstrikar mikilvægi þess að gengið sé vel um þegar farið er í framkvæmdir og samráð sé haft við staðkunnuga.

Heimastjórn samþykkir að vísa málinu til HEF veitna vegna lagfæringa á skemmdum og umhverfis- og framkvæmdaráðs vegna skilgreiningar á landnotkun. Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 194. fundur - 28.09.2026

Við upphaf máls vakti Glúmur Björnsson V-Lista athygli á vanhæfi sínu og bar varaformaður upp tillögu þess efnis sem var samþykkt samhljóða. GB vék af fundinum undir umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur fyrir, eftir umfjöllun heimastjórnar á Borgarfirði, erindi frá deildarstjórum leik- og grunnskólans á Borgarfirði vegna verksummerkja HEF veitna á útikennslusvæði barnanna. Erindið er dagsett 20. ágúst 2026.
Heimastjórn Borgarfjarðar vísaði því til umhverfis- og framkvæmdaráðs að skoða skilgreiningu landnotkunar svæðisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð staðfestir að svæðið er skilgreint sem opið svæði.

HEF veitur skulu vinna áfram að frágangi svæðisins í samráði við leik- og grunnskóla Borgarfjarðar. Ráðið beinir því einnig til HEF veitna að skerpa á verkferlum sínum varðandi frágang á svæðum að loknu verki.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?