Fara í efni

Heilsueflandi samfélag

Málsnúmer 202608178

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 166. fundur - 31.08.2026

Fyrir liggur minnisblað um verkefnið Heilsueflandi samfélag og hvernig þátttaka getur stutt Múlaþing í markvissu og samhæfðu starfi með heilsu og vellíðan íbúa að leiðarljósi.
Fjölskylduráð samþykkir þátttöku Múlaþings í Heilsueflandi samfélagi og vísar málinu til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fylgiskjöl:

Sveitarstjórn Múlaþings - 71. fundur - 09.09.2026

Fyrir liggur minnisblað um verkefnið Heilueflandi samfélag á vegum Landlæknis sem miðar að því að styðja sveitarfélög við að vinna með heildrænum hætti að heilsueflingu og forvörnum, og skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilsu og vellíðan íbúa. Málið var tekið fyrir á fundi fjölskylduráðs 31. ágúst 2026.
Til máls tóku: Jónína Brynjólfsdóttir, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Ívar Karl Hafliðason,

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir þátttöku Múlaþings í Heilsueflandi samfélagi.

Samþykkt með 10 atkvæðum, 1 á móti (OBD).
Getum við bætt efni þessarar síðu?