Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

166. fundur 31. ágúst 2026 kl. 09:30 - 10:35 Tryggvabúð
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Erlingur Hjörvar Guðjónsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varamaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir varamaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson varafulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
  • Gunnlaugur Aðalbjarnarson deildarstjóri íþrótta og tómstunda
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði

1.Heilsueflandi samfélag

Málsnúmer 202608178Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um verkefnið Heilsueflandi samfélag og hvernig þátttaka getur stutt Múlaþing í markvissu og samhæfðu starfi með heilsu og vellíðan íbúa að leiðarljósi.
Fjölskylduráð samþykkir þátttöku Múlaþings í Heilsueflandi samfélagi og vísar málinu til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fylgiskjöl:

2.Starfsáætlun fjölskylduráðs

Málsnúmer 202608162Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar drög að starfsáætlun fjölskylduráðs fyrir tímabilið september 2026 - júní 2027. Áætluninni er ætlað að skapa yfirsýn yfir fundi ráðsins, fyrirkomulag þeirra og helstu mál sem fyrirhugað er að taka fyrir.
Lagt fram til kynningar.

3.Mönnun i Íþróttamiðstöð Djúpavogs

Málsnúmer 202606164Vakta málsnúmer

Heimastjórn Djúpavogs vísaði til fjölskylduráðs erindi íbúasamtaka Djúpavogs varðandi öryggi og mönnun í íþróttamiðstöðinni. Í kjölfarið hefur verið tekið saman minnisblað um núverandi mönnun, opnunartíma og kostnað við starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar. Minnisblaðið er lagt fram til umfjöllunar í fjölskylduráði.
Deildarstjóri íþrótta og tómstunda fór yfir minnisblað um stöðu málsins. Fjárhagsáætlun næsta árs gerir ekki ráð fyrir auknum stöðugildum í Íþróttamiðstöð Djúpavogs en fjölskylduráð tekur undir áhyggjur heimastjórnar og er starfsmanni falið að fylgja eftir minnisblaði við heimastjórn Djúpavogs.

4.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:35.

Getum við bætt efni þessarar síðu?