Fara í efni

Meðhöndlun matarleifa í Múlaþingi

Málsnúmer 202609081

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192. fundur - 14.09.2026

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi vegna þeirrar nauðsynjar að finna varanlegan farveg fyrir matarleifar þar sem óvíst er að Molta muni halda áfram að taka við þeim.
Lagt fram til kynningar.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 193. fundur - 21.09.2026

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.

Framlögð er til kynningar fundargerð frá fundi sem haldinnn var í Austurbrú þann 2. september 2026. Efni fundarins: Lífúrgangur á Austurlandi - vinnufundur.
Áhugasamir geta skoðað málið nánar hér: https://www.samband.is/frettir/medhondlun-lifurgangs-a-islandi-utgefin-skyrsla

Verkefnastjóri umhverfsmála fer yfir ráðstöfunarleiðir matarleifa.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðar ráðstafanir í samræmi við umræður á fundinum og felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?