Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

193. fundur 21. september 2026 kl. 09:30 - 12:55 í Herðubreið, Seyðisfirði
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Þórhallur Borgarsson aðalmaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson varamaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Verkefnastjóri skipulagsmála, Sóley Valdimarsdóttir, sat fundinn undir lið 4.

Verkefnastjóri umhverfismála, Stefán Aspar Stefánsson, sat fundinn undir lið 5. og 6.

1.Fundir umhverfis- og framkvæmdaráðs 2026-2030

Málsnúmer 202606013Vakta málsnúmer

Formaður umhverfis- og framkvamdaráðs leggur til kynningar og umræðu reglur kjörinna fulltrúa varðandi vanhæfi í umræðum á fundi.

Um vanhæfi kjörinna fulltrúa Múlaþings gilda skýrar lagareglur, bæði við umfjöllun í sveitarstjórn og í ráðum, nefndum og heimastjórnum. Þar skal litið til 20.gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011, 3.-5. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 17. gr. samþykktar um stjórn Múlaþings.
Lagt fram til kynningar.

2.Ofanflóðavarnir, Neðri-Botnar, Verkhönnun og framkvæmd

Málsnúmer 202508060Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda fer yfir tillögu um breytingu á samningi um verkhönnun ofanflóðavarna undir Botnum á Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Lagt er til að samið verði við VSÓ um breytt umfang á ráðgjafarsamningi um hönnun ofanflóðavarna á Seyðisfirði - Botnar, á grundvelli núgildandi samnings.

Samþykkt samhljóða.

3.Krafa um endurskoðun umhverfismats í Seyðisfirði

Málsnúmer 202608218Vakta málsnúmer

Lagt er fram til kynningar hjá umhverfis- og framkvæmdaráði erindi frá Rétti ehf. sem beint er til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS).

Erindið snýr að kröfu um að HMS taki án tafar afstöðu til þess hvort endurskoða þurfi umhverfismat framkvæmdar Kaldvíkur hf. til sjókvíaeldis í Seyðisfirði, sbr. 28. gr. laga nr. 111/2021.
Frestað til næsta fundar.

4.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Undir umsögn nr. 29. bar formaður upp vanhæfi sitt, og var vanhæfið borið upp til atkvæðagreiðslu. Vanhæfið var samþykkt samhljóða og vék formaður, Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, af fundi við umræðu og afgreiðslu umsagnarinnar. Varaformaður, Þórey Birna Jónsdóttir, tók við fundarstjórn.

Auglýsing nýs Aðalskipulags Múlaþings 2025-2045 stóð yfir frá 22. maí til 13. júlí 2026. Fyrir liggja drög að umsögn um þær athugasemdir sem bárust.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn um athugasemdir. Skipulagstillagan verður uppfærð til samræmis og lögð fyrir ráðið að nýju.

Samþykkt samhljóða.

Fulltrúar V-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar V-lista vísa til fyrri bókana er varða hverfisvernd frá 177. fundi og 179. fundi Umhverfis- og framkvæmdaráð og eiga þær líka við um afgreiðslu þessa máls.

5.Meðhöndlun matarleifa í Múlaþingi

Málsnúmer 202609081Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.

Framlögð er til kynningar fundargerð frá fundi sem haldinnn var í Austurbrú þann 2. september 2026. Efni fundarins: Lífúrgangur á Austurlandi - vinnufundur.
Áhugasamir geta skoðað málið nánar hér: https://www.samband.is/frettir/medhondlun-lifurgangs-a-islandi-utgefin-skyrsla

Verkefnastjóri umhverfsmála fer yfir ráðstöfunarleiðir matarleifa.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðar ráðstafanir í samræmi við umræður á fundinum og felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

6.Umhverfisviðurkenningar 2026

Málsnúmer 202607097Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að veita umhverfisviðurkenningar Múlaþings 2026.

Eins liggja fyrir að nýju, uppfærðar reglur vegna umhverfisviðurkenninga og liggur fyrir ráðinu að samþykkja þær.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir veitingu umhverfisviðurkenninga í samræmi við umræður á fundinum og felur formanni umhverfis- og framkvæmdaráðs og verkefnastjóra umhverfismála að veita viðurkenninguna. Ráðið þakkar tilnefningarnar og hvetur íbúa til að senda inn tilnefningar á næsta ári.

Ráðið samþykkir framlagðar breytingar á reglum um afhendingu umhverfisviðurkenninga.

Samþykkt samhljóða.

7.Skýrsla sviðsstjóra framkvæmda 2026

Málsnúmer 202512240Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda, Hugrún Hjálmarsdóttir, fer yfir stöðu verkefna á sviðinu.
Frestað.

8.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð starfshóps um uppbyggingu íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum þann 11. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:55.

Getum við bætt efni þessarar síðu?