Fara í efni

Breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga

Málsnúmer 202609101

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 199. fundur - 15.09.2026

Fyrir liggur kynning frá Umhverfis- og orkustofnun um yfirfærslu verkefna frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga frá 1. janúar 2027. Þá liggur fyrir minnisblað um málið, dagsett 4. september 2026, frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar og varaformaður heilbrigðisnefndar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Jónínu fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Byggðaráð lýsir yfir áhyggjum af framkvæmdinni við það að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga. Enn ríkir mikil óvissa um afdrif starfa og verkefna. Hætta er á því að sérfræðistörfum fækki á landsbyggðinni, kostnaður hækki á notendur eftirlits, skerðing verði á þjónustu auk þess sem verkefni flytjast á fleiri stofnanir sem mun auka flækjustig.

Byggðaráð vísar málinu til umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 194. fundur - 28.09.2026

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið ásamt Jónínu Brynjólfsdóttur, forseta sveitarstjórnar og varaformanni heilbrigðisnefndar.

Byggðaráð vísaði til umfjöllunar hjá umhverfis- og framkvæmdaráði, á 199. fundi sínum 15. september, kynningu frá Umhverfis- og orkustofnun. Kynningin fjallar um yfirfærslu verkefna frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga frá 1. janúar 2027. Þá liggur fyrir minnisblað um málið, dagsett 4. september 2026, frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir bókun byggðarráðs.

Jafnframt felur ráðið verkefnastjóra umhverfismála að taka saman minnisblað um þau verkefni sem að sveitarfélögum verður falið og fjalla um önnur álitamál sem tengjast þessari yfirfærslu verkefna.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Jónína Brynjólfsdóttir - mæting: 14:10
Getum við bætt efni þessarar síðu?