Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

199. fundur 15. september 2026 kl. 08:30 - 09:55 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir og kynnti mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fer yfir stöðu vinnu fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030 á grundvelli rammaáætlunar sem samþykkt var af sveitarstjórn 9. september 2026. Þá liggja fyrir áherslur heimastjórna í Múlaþingi við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Í vinnslu.

3.Samkomusalur í Valaskjálf

Málsnúmer 202607130Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun sveitarstjórnar Múlaþings frá 9. september 2026 þar sem byggðaráði var falið að eiga áfram samtal við eigendur 701 Hotels ehf. um framtíð samkomusalarins í Valaskjálf.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að sjá til þess að hafin verði vinna við bæði þarfagreiningu og kostnaðargreiningu fyrir skrifstofu sveitarfélagsins á Egilsstöðum. Jafnframt er sveitarstjóra falið að afla upplýsinga hjá eigendum Valaskjálfar um þann tímaramma sem sveitarfélagið hefur til að taka ákvörðun um hugsanleg kaup sveitarfélagsins á Valaskjálf.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga

Málsnúmer 202609101Vakta málsnúmer

Fyrir liggur kynning frá Umhverfis- og orkustofnun um yfirfærslu verkefna frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga frá 1. janúar 2027. Þá liggur fyrir minnisblað um málið, dagsett 4. september 2026, frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar og varaformaður heilbrigðisnefndar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Jónínu fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Byggðaráð lýsir yfir áhyggjum af framkvæmdinni við það að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga. Enn ríkir mikil óvissa um afdrif starfa og verkefna. Hætta er á því að sérfræðistörfum fækki á landsbyggðinni, kostnaður hækki á notendur eftirlits, skerðing verði á þjónustu auk þess sem verkefni flytjast á fleiri stofnanir sem mun auka flækjustig.

Byggðaráð vísar málinu til umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.400 ár frá Tyrkjaráni

Málsnúmer 202604242Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun heimastjórnar Djúpavogs frá 3. september 2026 um Tyrkjaránið og að þess verði minnst með sérstökum hætti á vegum Múlaþings á árinu 2027 þegar 400 ár verða liðin frá því það átti sér stað. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Elsa Guðný Björgvinsdóttir, deildarstjóri menningarmála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Elsu Guðnýju fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Byggðaráð felur deildarstjóra menningarmála að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerðir stjórnar Samtaka Orkusveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202602127Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 27. apríl, 18. júní, 7. ágúst og 21. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:55.

Getum við bætt efni þessarar síðu?