Fara í efni

Þjóðarsátt um verðstöðugleika

Málsnúmer 202609147

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 200. fundur - 22.09.2026

Fyrir liggur erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands, dagsett 16. september 2026, þar sem óskað er eftir skriflegu svari við því hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar fyrir erindið. Sveitarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?