Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

200. fundur 22. september 2026 kl. 09:00 - 12:26 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Guðlaugur Sæbjörnsson starfsmaður
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Í upphafi fundar bar formaður byggðaráðs upp tillögu um að mál undir lið 12, Umsagnarbeiðni um 5. mál, Frumvarp til sveitarstjórnarlaga, yrði bætt við dagskrána.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála fara yfir stöðu vinnu fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030 á grundvelli rammaáætlunar sem samþykkt var af sveitarstjórn 9. september 2026.
Í vinnslu.

3.Heimsókn frá Lánasjóði sveitarfélaga

Málsnúmer 202609175Vakta málsnúmer

Stjórn og starfsmenn Lánasjóðs sveitarfélaga mæta á fund byggðaráðs og kynna starfsemi sjóðsins.
Byggðaráð Múlaþings þakkar stjórn og starfsfólki Lánasjóðs sveitarfélaga fyrir komuna á fundinn og góðar umræður.

4.Menningarstyrkir 2026, seinni úthlutun

Málsnúmer 202608024Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga fagráðs um seinni úthlutun menningarstyrkja árið 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Elsa Guðný Björgvinsdóttir, deildarstjóri menningarmála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Elsu Guðnýju fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Byggðaráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að úthlutun menningarstyrkja og felur deildarstjóra menningarmála að annast úthlutun í samræmi við gildandi reglur.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Rekstur, Langabúð Djúpavogi

Málsnúmer 202607139Vakta málsnúmer

Fyrir liggur uppsögn á rekstarleigusamningi Löngubúðar á Djúpavogi frá og með 31. desember 2026. Málið var tekið fyrir á fundi byggðaráðs Djúpavogs 18. ágúst 2026.
Í vinnslu.

6.Áhrif fjármálaáætlunar 2027 til 2031 á Austurland

Málsnúmer 202609057Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sigfinni Björnssyni, dagsett 7. september 2026, um áhrif fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2027-2031 á ferðaþjónustu og byggðaþróun á landsbyggðinni.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir athugasemdir um mikilvægi þess að fjármögnun verði tryggð fyrir flugþróunarsjóð og unnið verði að því með enn kröftugri hætti að dreifa ferðamönnum betur um landið og jafna árstíðarsveiflu. Sveitarstjóra falið að koma þessum ábendingum á framfæri við fjárlaganefnd sem hluta af umsögn sveitarfélagsins um fjárlagafrumvarp 2027.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Erindi til sveitarstjórnar

Málsnúmer 202609126Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá formönnum VR verkalýðsfélags, Landssambands íslenskra verslunarmanna, og Rafiðnaðarsambandsins fyrir hönd fagfélaga, til Múlaþings um stöðu kjarasamninga og hvað sveitarfélagið sé tilbúið til að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar fyrir erindið. Sveitarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.Þjóðarsátt um verðstöðugleika

Málsnúmer 202609147Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands, dagsett 16. september 2026, þar sem óskað er eftir skriflegu svari við því hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar fyrir erindið. Sveitarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Öryggismál í Stuðlagili

Málsnúmer 202609135Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð samráðsfundar á vegum Ferðamálastofu um öryggismál við Stuðlagil frá 9. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

10.Fjárlagafrumvarp 2027

Málsnúmer 202609142Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar samantekt Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsett 16. september 2026, um fjárlagafrumvarp 2027.
Lagt fram til kynningar.

11.Samráðsgátt. Tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði

Málsnúmer 202609078Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindi frá verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar, dagsett 9. september 2026, þar sem upplýst er að hún hefur sett tillögu um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði í samráðsgátt stjórnvalda.
Lagt fram til kynningar.

12.Umsagnarbeiðni um 5. mál, Frumvarp til sveitarstjórnarlaga

Málsnúmer 202609173Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í umsagnagátt Alþingis mál 5, Frumvarp til sveitarstjórnarlaga. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um frumvarpið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 12:26.

Getum við bætt efni þessarar síðu?