Fara í efni

Búnaður í Sláturhúsinu

Málsnúmer 202609238

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 201. fundur - 06.10.2026

Fyrir liggur erindi frá forstöðumanni Sláturhússins menningarmiðstöðvar og formanni fagráðs, dagsett 25. september 2026, þar sem óskað er eftir að gert verði ráð fyrir fjármunum til kaupa á búnaði í sal á efri hæð Sláturhússins í fjárhagsáætlun 2027.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 202. fundur - 20.10.2026

Fyrir liggur erindi frá forstöðumanni Sláturhússins menningarmiðstöðvar og formanni fagráðs, dagsett 25. september 2026, þar sem óskað er eftir að gert verði ráð fyrir fjármunum til kaupa á búnaði í sal á efri hæð Sláturhússins í fjárhagsáætlun 2027. Inn á fundinn undir þessum lið mæta Ragnhildur Ásvaldsdóttir, forstöðumaður Sláturhússins, og Óðinn Gunnar Óðinsson, formaður fagráðs Sláturhússins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Ragnhildi og Óðni Gunnari fyrir komuna á fundinn og kynningu á erindinu.

Byggðaráð tekur jákvætt í að fjármunum verði varið til kaupa á búnaði í sal á efri hæð Sláturhússins og telur jafnframt mikilvægt að hugað verði að búnaði í öðrum sölum í eigu sveitarfélagsins. Erindinu er vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?