Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

202. fundur 20. október 2026 kl. 08:30 - 12:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Guðlaugur Sæbjörnsson starfsmaður
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Í upphafi fundar bar formaður byggðaráðs upp tillögu um að mál undir lið 15, um frumvarp til breytinga á ýmsum lögum um skatta og gjöld, yrði bætt við dagskrána.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála fara yfir stöðu vinnu fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030 á grundvelli rammaáætlunar sem samþykkt var af sveitarstjórn 9. september 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Í forsendum fjárhagsáætlunar 2027 er gert ráð fyrir eftirfarandi álagningarhlutföllum fasteignaskatts, samanber 3. grein laga um tekjustofna sveitarfélaga, og lóðarleigu:

- Íbúðarhúsnæði (A-flokkur): 0,43% af fasteignamati húss og lóðar. Var 0,45%.
- Opinbert húsnæði (B-flokkur): 1,32% af fasteignamati húss og lóðar. Óbreytt.
- Atvinnuhúsnæði (C-flokkur): 1,60% af fasteignamati húss og lóðar. Var 1,625%.
- Lóðarleiga: 0,75% af fasteignamati leigulóða. Óbreytt.

Samkvæmt þessu lækkar álagningarhlutfall á íbúðarhúsnæði um 0,02 prósentustig og á atvinnuhúsnæði um 0,025 prósentustig. Hlutföll á opinbert húsnæði og lóðarleiga haldast óbreytt.

Samþykkt með fjórum atkvæðum, einn sat hjá (HHÁ).

Málið áfram í vinnslu.

3.Minnisvarðar og skilti í Múlaþingi

Málsnúmer 202605232Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Rótarýklúbbi Héraðsbúa, dagsett 7. september 2026, um umsjón með viðhaldi, aðkomu og merkingu minnisvarða á Fljótsdalshéraði. Inn á fundinn undir þessum lið mættu Skúli Björnsson og Bjarni G. Björgvinsson fyrir hönd Rótarýklúbbsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Skúla og Bjarna fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Byggðaráð fagnar áhuga Rótarýklúbbs Héraðsbúa á að taka að sér umsjón með viðhaldi, aðkomu og merkingu minnisvarða á Fljótsdalshéraði. Um er að ræða að minnsta kosti þrjá minnisvarða: um Pál Ólafsson við Hallfreðarstaði, um Jóhann Magnús Bjarnason í Meðalnesi og Kvennavörðuna á Egilsstöðum. Minnisvarðarnir eru hluti af sögu og menningararfi svæðisins.

Deildarstjóra menningarmála er falið að gera drög að samkomulagi um verkefnið í samráði við Rótarýklúbbinn. Þar komi fram hlutverk og verkaskipting aðila og hvort og þá hvernig sveitarfélagið komi að verkefninu. Drögin verði lögð fyrir byggðaráð til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Búnaður í Sláturhúsinu

Málsnúmer 202609238Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá forstöðumanni Sláturhússins menningarmiðstöðvar og formanni fagráðs, dagsett 25. september 2026, þar sem óskað er eftir að gert verði ráð fyrir fjármunum til kaupa á búnaði í sal á efri hæð Sláturhússins í fjárhagsáætlun 2027. Inn á fundinn undir þessum lið mæta Ragnhildur Ásvaldsdóttir, forstöðumaður Sláturhússins, og Óðinn Gunnar Óðinsson, formaður fagráðs Sláturhússins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Ragnhildi og Óðni Gunnari fyrir komuna á fundinn og kynningu á erindinu.

Byggðaráð tekur jákvætt í að fjármunum verði varið til kaupa á búnaði í sal á efri hæð Sláturhússins og telur jafnframt mikilvægt að hugað verði að búnaði í öðrum sölum í eigu sveitarfélagsins. Erindinu er vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Húsnæði fyrir inniaðstöðu Golfklúbbs Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 202609230Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Golfklúbbi Fljótsdalshéraðs, dagsett 23. september 2026, þar sem óskað er eftir að fá hluta af Samfélagssmiðjunni að Miðvangi 31 undir inniaðstöðu golfklúbbsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Golfklúbbi Fljótsdalshéraðs fyrir erindið og felur sviðsstjóra framkvæmda að skoða málið áfram í samráði við klúbbinn. Málið verði lagt að nýju fyrir byggðaráð að þessari vinnu lokinni.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Sænautasel

Málsnúmer 202209144Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslu um stöðu Sænautasels, en samningur um leigu á staðnum rennur út 31. desember 2026.
Málinu er frestað til næsta fundar.

7.Öldugata 14 Seyðisfirði

Málsnúmer 202209107Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá forstöðumanni Skaftfells um kaup á Öldugötu 14. Menningarmiðstöðin hefur um árabil haft húsið á leigu og rekið þar prentverkstæði og íbúð sem leigð er til listamannadvalar. Málið var síðast tekið fyrir á fundi byggðaráðs 19. maí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að selja Skaftfelli, menningarmiðstöð myndlistar á Austurlandi, fasteignina að Öldugötu 14 á Seyðisfirði, fastanúmer 216-8907, fyrir 16 milljónir króna. Sveitarstjóra falið að ganga frá kaupsamningi um eignina.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.Bílskúr fyrir sjúkrabíl á Seyðisfirði

Málsnúmer 202609050Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun heimastjórnar Seyðisfjarðar frá 1. október 2026 varðandi erindi frá starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Austurlands um bága aðstöðu fyrir sjúkrabíl á Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir áhyggjur heimastjórnar Seyðisfjarðar og starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Austurlands af aðstöðu sjúkrabíls á Seyðisfirði. Það er óásættanlegt að sjúkrabíllinn standi utandyra árið um kring. Seyðisfjörður býr við krefjandi vetraraðstæður og samgöngur yfir Fjarðarheiði eru oft erfiðar. Við þær aðstæður getur aðstöðuleysið hamlað aðgengi að bílnum og seinkað viðbragði. Það stefnir öryggi íbúa og sjúklinga í hættu og fer auk þess illa með bílinn og búnað hans.

Byggðaráð skorar á heilbrigðisráðuneytið að tryggja án tafar fjármagn til að byggja eða útvega viðunandi sjúkraskýli á Seyðisfirði.

Sveitarstjóra falið að koma bókuninni á framfæri við heilbrigðisráðuneytið.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Fækkun lögregluembætta

Málsnúmer 202610048Vakta málsnúmer

Dómsmálaráðherra hefur kynnt fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu. Með breytingunum stendur til að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú auk þess sem skerpt verður á hlutverki ríkislögreglustjóra.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings mótmælir fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglu sem fela í sér að sjálfstætt lögregluembætti á Austurlandi verði lagt niður og það sameinað embættum á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Með því færist yfirstjórn löggæslu í landshlutanum langt frá íbúum og út fyrir Norðausturkjördæmi.

Í Múlaþingi eru tvær af mikilvægustu gáttum landsins við umheiminn: millilandaferjuhöfnin á Seyðisfirði og Egilsstaðaflugvöllur, sem er einnig varaflugvöllur fyrir millilandaflug. Landamæraeftirlit er því stór hluti af verkefnum lögreglunnar á svæðinu. Reynslan af náttúruvá, meðal annars skriðuföllunum á Seyðisfirði, hefur sýnt hve mikilvægt er að þekking á staðháttum, skýr ábyrgð og stjórnun almannavarna séu í heimabyggð.

Sveitarfélög á Austurlandi hafa lengi kallað eftir fleiri lögreglumönnum, betri búnaði og öflugra landamæraeftirliti. Byggðaráð telur að fækkun embætta og breytt skipurit svari ekki þeim þörfum. Fjarlægðir og verkefni hverfa ekki við sameiningu. Yfirlýsingar um óbreyttan fjölda starfsstöðva tryggja ekki staðbundið ákvörðunarvald. Áður en lengra er haldið þurfa að liggja fyrir skýrar upplýsingar um valdheimildir, mannafla, fjármögnun og stjórnun almannavarna. Einnig þarf að eiga raunverulegt samráð við sveitarfélög og viðbragðsaðila.

Byggðaráð telur að tenging Austurlands við Suðurland og Vestmannaeyjar samræmist illa landfræðilegum aðstæðum og þjónustutengslum. Verði umdæmaskipan breytt er eðlilegra að horfa til Norðurlands.

Byggðaráð krefst þess að fallið verði frá áformunum. Þess í stað verði löggæsla á Austurlandi efld með auknum mannafla, betri búnaði og fjárveitingum sem endurspegla umfang verkefnanna, og stjórnun og ákvörðunarvald haldist í landshlutanum.

Byggðaráð vísar málinu til stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og hvetur til þess að sveitarfélögin á Austurlandi komi fram með sameiginlega afstöðu gagnvart dómsmálaráðuneytinu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

10.Almenningssamgöngur á Austurlandi - landsbyggðarvagnar

Málsnúmer 202603132Vakta málsnúmer

Fyrir liggur kynning Vegagerðarinnar um landsbyggðarvagna og almenningssamgöngur á Austurlandi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings leggur ríka áherslu á að almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins og á Austurlandi öllu séu góðar, áreiðanlegar og vel tengdar. Múlaþing er víðfeðmt sveitarfélag með nokkra byggðakjarna og góðar almenningssamgöngur skipta miklu máli til að íbúar komist til vinnu, í nám og til að sækja þjónustu, þar á meðal heilbrigðisþjónustu.

Byggðaráð hvetur Vegagerðina til að hafa gott samráð við sveitarfélagið og Samband sveitarfélaga á Austurlandi um skipulag og þróun almenningssamgangna á svæðinu og lýsir sig reiðubúið til samstarfs um úrbætur.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

11.Ársskýrsla HAUST 2025

Málsnúmer 202610054Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir árið 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Heilbrigðiseftirliti Austurlands fyrir ársskýrsluna. Byggðaráð þakkar jafnframt starfsfólki HAUST og heilbrigðisnefnd Austurlands fyrir vel unnin störf í þágu íbúa og atvinnulífs á svæðinu.

Með lögum sem Alþingi samþykkti í júní 2026 verða heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður. Eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum færist til Umhverfis- og orkustofnunar og matvælaeftirlit til nýrrar Stofnunar atvinnuveganna. Byggðaráð ítrekar þær áhyggjur af framkvæmd breytinganna sem komu fram í bókun ráðsins 15. september 2026. Nú eru rúmir tveir mánuðir til gildistöku og enn ríkir mikil óvissa um afdrif starfa og verkefna. Hætta er á að sérfræðistörfum fækki á landsbyggðinni, að kostnaður hækki hjá þeim sem sæta eftirliti og að þjónusta skerðist. Auk þess flytjast verkefni á fleiri stofnanir, sem eykur flækjustig.

Byggðaráð leggur áherslu á að sérfræðistörf í heilbrigðiseftirliti verði áfram á Austurlandi og að þjónusta við íbúa og fyrirtæki á svæðinu skerðist ekki. Einnig þarf að standa vel að málum gagnvart starfsfólki HAUST. Þá leggur byggðaráð áherslu á að uppgjör vegna niðurlagningar HAUST verði unnið í góðu samráði við sveitarfélögin á Austurlandi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

12.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Umsagnarbeiðni um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun nr.106,1999, 156.mál

Málsnúmer 202610079Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í umsagnagátt Alþingis frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun nr. 106/1999. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 22. október 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings gerir ekki athugasemdir við lagafrumvarpið.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

14.Samráðsgátt. Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

Málsnúmer 202610092Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í samráðsgátt frá innviðaráðuneytinu mál nr. S-191/2026, Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga. Frestur til að skila inn umsögn er til og með 13. nóvember 2026.
Málinu er frestað til næsta fundar.

15.Samráðsgátt. Breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Mál nr. S-196-2026.

Málsnúmer 202610142Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í samráðsgátt frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu mál nr. S-196/2026, Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tekjuskattur, tollar og fleira). Frestur til að skila inn umsögn er til og með 20. október 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um málið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 12:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?