Hafnastjóri, yfirhafnavörður, yfirlögfræðingur Múlaþings og verkefnastjóri skipulagsmála sitja fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur erindi frá eigendum fimm sjávarjarða í Seyðisfirði og Vá!, félagasamtökum þar sem óskað er eftir því að Múlaþing beiti heimild í 14. grein laga um skipulag haf- og strandsvæða númer 88/2018 og tilkynni ráðherra um að gera þurfi breytingu á strandsvæðaskipulagi Austfjarða með vísan í mælingar Náttúrufræðistofnunar Íslands á stórstraumsfjöru frá 2025.
Jafnframt liggur fyrir minnisblað frá Jóni Jónssyni, lögmanni, um stöðu Múlaþings varðandi endurskoðun strandsvæðisskipulags.
Á grundvelli fyrirliggjandi minnisblaðs Jóns Jónssonar hæstaréttarlögmanns telur umhverfis- og framkvæmdaráð ekki þörf á að beita heimild 14. greinar laga um skipulag haf- og strandsvæða númer 88/2018.
Samþykkt með 5 atkvæðum, 2 á móti (HHÁ) V-lista og (GB) V-lista.
Fulltrúar V-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar V-lista lýsa yfir miklum vonbrigðum að meirihlutinn vilji ekki aðhafast í þessu máli sér í lagi vegna þess að svæðisráð hefur ekki verið virkt og ekki hefur verið hægt að leita til þess með málið. Því þykir fulltrúum V-lista miður að meirihlutinn vilji ekki taka af allan vafa í þessu máli. Samkvæmt skilningi okkar er ljóst að strandsvæðaskipulag fer inn fyrir netlög nokkurra jarða og þar á meðal hjá Múlaþingi sjálfu. Full ástæða er til að aðhafast í þessu máli.