Málsnúmer 202609266Vakta málsnúmer
Hafnastjóri, yfirhafnavörður, yfirlögfræðingur Múlaþings og verkefnastjóri skipulagsmála sitja fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur erindi frá eigendum fimm sjávarjarða í Seyðisfirði og Vá!, félagasamtökum þar sem óskað er eftir því að Múlaþing beiti heimild í 14. grein laga um skipulag haf- og strandsvæða númer 88/2018 og tilkynni ráðherra um að gera þurfi breytingu á strandsvæðaskipulagi Austfjarða með vísan í mælingar Náttúrufræðistofnunar Íslands á stórstraumsfjöru frá 2025.
Jafnframt liggur fyrir minnisblað frá Jóni Jónssyni, lögmanni, um stöðu Múlaþings varðandi endurskoðun strandsvæðisskipulags.
Yfirlögfræðingur Múlaþings, Aron Thorarensen, situr fundinn undir lið 4.
Verkefnastjóri skipulagsmála, Sóley Valdimarsdóttir, situr fundinn undir liðum 3.-5.
Verkefnastjóri framkvæmdamála, Rúnar Matthíasson, situr fundinn undir lið 8.
Verkefnastjóri umhverfismála, Stefán Aspar Stefánsson, situr fundinn undir lið 9.