Fara í efni

Reglugerð um innra eftirlit veitenda félagslegrar velferðarþjónustu

Málsnúmer 202610007

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 174. fundur - 16.11.2026

Þann 16. júlí 2026 tók gildi reglugerð nr. 818/2026 um innra eftirlit veitenda félagslegrar velferðarþjónustu, sem lýtur eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV). Sviðsstjóri velferðar kynnti efni reglugerðarinnar, þær kröfur sem hún gerir til sveitarfélaga og stöðu innleiðingar hjá Múlaþingi.
Fjölskylduráð fagnar aukinni áherslu á markvisst innra eftirlit í velferðarþjónustu sveitarfélaga og lýsir ánægju með að vinna við innleiðingu reglugerðarinnar sé þegar hafin hjá Múlaþingi. Ráðið lýsir þó áhyggjum af þeim knappa tímaramma sem sveitarfélögum er gefinn til innleiðingar, en samkvæmt reglugerðinni skulu þjónustuveitendur hafa lokið skjalfestingu verklags og upplýst Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) um fyrirkomulag innra eftirlits fyrir 1. janúar 2027. Fjölskylduráð Múlaþings óskar því eftir því að sveitarfélögum verði veittur rýmri frestur til að tryggja vandaða og markvissa innleiðingu reglugerðarinnar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?