Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

174. fundur 16. nóvember 2026 kl. 09:00 - 11:55 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir aðalmaður
  • Berglind Sveinsdóttir varamaður
  • Erla Gunnlaugsdóttir varamaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði
Anna Steinunn Árnadóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks, sat fundinn undir liðum 2 og 3. Þórey Hákonardóttir, ráðgjafi í málefnum eldra fólks sat fundinn undir liðum 5 og 6.

1.Ungmennaþing Barnaheilla á Egilsstöðum

Málsnúmer 202601073Vakta málsnúmer

Fyrir liggja niðurstöður ungmennaþinga Barnaheilla um ofbeldi í nánum samböndum sem haldin voru á sex stöðum á landinu á tímabilinu febrúar til apríl 2026, meðal annars á Egilsstöðum. Um 300 ungmenni tóku þátt í þingunum þar sem meðal annars var rætt um birtingarmyndir ofbeldis, áhrif samfélagsmiðla og þörf fyrir aukna fræðslu og aðgengileg stuðningsúrræði. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldisforvarna hjá Barnaheillum, mætti á fund fjölskylduráðs og kynnti helstu niðurstöður þinganna.
Fjölskylduráð þakkar Kolbrúnu fyrir upplýsandi kynningu og Barnaheillum fyrir mikilvægt framtak. Ráðið tekur þær niðurstöður sem fram komu á ungmennaþingunum alvarlega og telur brýnt að brugðist verði við þeim með markvissum aðgerðum eins og aukinni fræðslu, öflugu forvarnarstarfi og aðgengilegum stuðningsúrræðum fyrir börn, ungmenni og foreldra. Fjölskylduráð leggur einnig ríka áherslu á að rödd barna og ungmenna hafi raunveruleg áhrif á stefnumótun, forvarnarstarf og þróun þjónustu í Múlaþingi og vísar málinu til umfjöllunar í ungmennaráði. Sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu er falið að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Húsnæði og aðbúnaður Stólpa

Málsnúmer 202609282Vakta málsnúmer

Á fundi fjölskylduráðs þann 19. október 2026 var tekið fyrir erindi Þroskahjálpar á Austurlandi varðandi framtíðaraðstöðu og aðbúnað Stólpa og var samþykkt að bjóða fulltrúa frá félaginu á fund ráðsins. Kolbrún Erla Pétursdóttir, formaður Þroskahjálpar á Austurlandi, mætti á fundinn og fylgdi erindinu eftir.
Fjölskylduráð þakkar Kolbrúnu fyrir komuna og gagnlegt samtal um framtíðaraðstöðu og aðbúnað Stólpa. Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggja starfseminni viðunandi húsnæði og aðstöðu til framtíðar og vísar erindinu til áframhaldandi skoðunar í tengslum við þá þarfagreiningu á húsnæði Stólpa sem nú stendur yfir.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Samráðshópur Múlaþings um málefni fatlaðs fólks - Fundargerð

Málsnúmer 2609014FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð samráðshóps Múlaþings um málefni fatlaðs fólks, dagsett 30. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

4.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 202610227Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tillögur að gjaldskrám stuðningsþjónustu Múlaþings og Hlymsdala fyrir árið 2027.
Fjölskylduráð samþykkir gjaldskrárnar með leiðréttingum í samræmi við umræður á fundinum og vísar þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Öldungaráð Múlaþings - Fundargerð til kynningar

Málsnúmer 2610006FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð öldungaráðs Múlaþings, dagsett 22. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Heildargreining á stöðu eldra fólks í Múlaþingi

Málsnúmer 202611106Vakta málsnúmer

Í málefnasamningi meirihluta D og B lista í Múlaþingi fyrir kjörtímabilið 2026-2030 er kveðið á um að gerð verði greining á stöðu eldra fólks í sveitarfélaginu í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), með það að markmiði að ná heildstæðri yfirsýn yfir málaflokkinn.
Fjölskylduráð Múlaþings leggur áherslu á að hafinn verði undirbúningur að heildstæðri greiningu á stöðu eldra fólks í sveitarfélaginu í samræmi við málefnasamninginn. Fjölskylduráð felur formanni ráðsins og sviðsstjóra velferðar að undirbúa tillögu að skipan starfshóps og erindisbréfi hans.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Samstarf og regluleg viðvera Bergsins á Austurlandi

Málsnúmer 202608136Vakta málsnúmer

Á fundi fjölskylduráðs þann 21. september 2026 var tekið fyrir erindi frá Berginu headspace um samstarf og reglulega viðveru á Austurlandi. Samþykkt var að vinna málið áfram með það að markmiði að efla aðgengi ungmenna að gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðningi.
Fjölskylduráð vísar erindinu til ungmennaráðs Múlaþings til umsagnar og óskar eftir sjónarmiðum ráðsins varðandi mögulegt samstarf við Bergið headspace og reglulega viðveru þess á Austurlandi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2027

Málsnúmer 202610053Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Samtökum um kvennaathvarf, dagsett 6. október 2026, þar sem óskað er eftir stuðningi við samtökin fyrir árið 2027.
Fjölskylduráð þakkar Samtökum um kvennaathvarf fyrir erindið og leggur áherslu á mikilvægi þess starfs sem þar er unnið í þágu kvenna og barna sem búa við ofbeldi. Fjölskylduráð samþykkir að veita samtökunum styrk að fjárhæð 250.000 krónur.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta 2027

Málsnúmer 202610065Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Stígamótum, dagsett 7. október 2026, þar sem óskað er eftir fjárstuðningi Múlaþings við starfsemi samtakanna á árinu 2027.
Fjölskylduráð þakkar Stígamótum fyrir erindið og leggur áherslu á mikilvægi þess starfs sem þar er unnið í þágu þolenda kynferðisofbeldis. Fjölskylduráð samþykkir að veita Stígamótum styrk að fjárhæð 250.000 krónur.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Beiðni um stuðning við starfsemi Samtaka um karlaathvarf

Málsnúmer 202610106Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Samtökum um karlaathvarf þar sem óskað er eftir fjárstuðningi Múlaþings við starfsemi samtakanna á árinu 2027.
Fjölskylduráð þakkar Samtökum um karlaathvarf fyrir erindið og telur mikilvægt að einstaklingar sem verða fyrir ofbeldi hafi aðgang að viðeigandi stuðningi og úrræðum, óháð kyni. Fjölskylduráð sér sér þó ekki fært að verða við styrkbeiðni samtakanna að þessu sinni.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

11.Fjárhagslegur stuðningur vegna áskriftarkostnaðar sem fellur til hjá sveitarfélögum

Málsnúmer 202611049Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindi frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um innleiðingu samræmdrar grunnskráningar í félagsþjónustu sveitarfélaga. Verkefnið miðar að því að samræma skráningu og miðlun upplýsinga um veitta félagsþjónustu og bæta þannig yfirsýn, tölfræði og stefnumótun á landsvísu. Jafnframt er kynntur fjárhagslegur stuðningur til sveitarfélaga vegna innleiðingar þjónustukerfa fyrir stuðnings- og stoðþjónustu.
Lagt fram til kynningar.

12.Reglugerð um innra eftirlit veitenda félagslegrar velferðarþjónustu

Málsnúmer 202610007Vakta málsnúmer

Þann 16. júlí 2026 tók gildi reglugerð nr. 818/2026 um innra eftirlit veitenda félagslegrar velferðarþjónustu, sem lýtur eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV). Sviðsstjóri velferðar kynnti efni reglugerðarinnar, þær kröfur sem hún gerir til sveitarfélaga og stöðu innleiðingar hjá Múlaþingi.
Fjölskylduráð fagnar aukinni áherslu á markvisst innra eftirlit í velferðarþjónustu sveitarfélaga og lýsir ánægju með að vinna við innleiðingu reglugerðarinnar sé þegar hafin hjá Múlaþingi. Ráðið lýsir þó áhyggjum af þeim knappa tímaramma sem sveitarfélögum er gefinn til innleiðingar, en samkvæmt reglugerðinni skulu þjónustuveitendur hafa lokið skjalfestingu verklags og upplýst Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) um fyrirkomulag innra eftirlits fyrir 1. janúar 2027. Fjölskylduráð Múlaþings óskar því eftir því að sveitarfélögum verði veittur rýmri frestur til að tryggja vandaða og markvissa innleiðingu reglugerðarinnar.

13.Kynning á starfsemi fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202606038Vakta málsnúmer

Rannveig Hrönn Friðriksdóttir, verkefnastjóri barna- og fjölskylduverndar hjá Múlaþingi, kynnti starfsemi á sviði barna- og fjölskylduverndar í sveitarfélaginu.
Fjölskylduráð þakkar Rannveigu fyrir góða og upplýsandi kynningu.

14.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra velferðar.
Skýrsla lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:55.

Getum við bætt efni þessarar síðu?