Fara í efni

Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga

Málsnúmer 202610016

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 201. fundur - 06.10.2026

Fyrir liggur fundarboð á stofnfund Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga sem haldinn verður á Hilton Reykjavík 7. október 2026 kl. 15.00.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri fari með atkvæði Múlaþings á stofnfundi Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga sem haldinn verður 7. október 2026 kl. 15.00.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 72. fundur - 14.10.2026

Fyrir liggur bókun byggðaráðs frá 6. október 2026 þar sem samþykkt var að Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri færi með atkvæði Múlaþings á stofnfundi Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga sem fram fór 7. október 2026. Fyrir sveitarstjórn liggur að staðfesta aðild sveitarfélagsins að samtökunum.
Til máls tóku: Þórey Birna Jónsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Ívar Karl Hafliðason, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Herdís Magna Gunnarsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings staðfestir aðild sveitarfélagsins að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?