Fara í efni

Sveitarstjórn Múlaþings

72. fundur 14. október 2026 kl. 13:00 - 14:42 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir 2. varaforseti
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Eiður Ragnarsson aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir aðalmaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir aðalmaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir varamaður
  • Þórir Stefánsson varamaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Hlynur Jónsson fundarritari
  • Hrund Erla Guðmundsdóttir starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Í fjarveru forseta sveitarstjórnar, Jónínu Brynjólfsdóttur, og 1. varaforseta, Berglindar Hörpu Svavarsdóttur, stýrir 2. varaforseti, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, fundinum.

Í upphafi fundar bar 2. varaforseti upp tillögu um að sveitarstjórnarfulltrúinn Þórey Birna Jónsdóttir yrði kjörin sérstakur fundarstjóri sem tæki við stjórn fundarins meðan 2. varaforseti tæki þátt í umræðum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að nýju Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045, ásamt fylgigögnum og skrá um vegi í náttúru Íslands. Tillagan var auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga með athugasemdafresti til og með 13. júlí 2026. Jafnframt liggur fyrir samantekt umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingatíma, ásamt viðbrögðum við þeim, en afgreiðsla þeirra var samþykkt á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 21. september 2026.

Skipulagstillagan hefur verið uppfærð í samræmi við afgreiðslu ráðsins sem á fundi 5. október 2026 samþykkti að vísa henni til endanlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar.
Við upphaf máls vakti sveitarstjórnarfulltrúinn Herdís Magna Gunnarsdóttir athygli á vanhæfi sínu og bar formaður upp tillögu þess efnis. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu. HMG vék af fundinum undir umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Til máls tóku: Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Ívar Karl Hafliðason.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögu að Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045, ásamt fylgigögnum, samkvæmt 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jafnframt samþykkir sveitarstjórn skrá um vegi í náttúru Íslands samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 260/2018.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að lokinni staðfestingu og gildistöku Aðalskipulags Múlaþings 2025-2045 hefji byggðaráð vinnu við mótun atvinnustefnu fyrir sveitarfélagið. Markmið þeirrar vinnu verður meðal annars að skýra stefnu sveitarfélagsins um atvinnuuppbyggingu, ferðaþjónustu og nýtingu atvinnusvæða. Gefi niðurstöður atvinnustefnunnar tilefni til verður ráðist í viðeigandi breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins í samræmi við þá stefnumörkun sem þar verður mótuð.

Sveitarstjórn samþykkir að framangreind gögn verði send Húsnæðis- og mannvirkjastofnun til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Starfshópur - framkvæmd stækkun Seyðisfjarðarskóla

Málsnúmer 202211079Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 24. ágúst 2026 þar sem fyrirliggjandi tilboðum var hafnað að loknu útboði vegna stækkunar Seyðisfjarðarskóla.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings staðfestir afgreiðslu umhverfis- og framkvæmdaráðs um að hafna fyrirliggjandi tilboðum á þeim forsendum að þau eru yfir kostnaðaráætlun, og felur ráðinu að bjóða verkið út að nýju.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tillögur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Hlutverk starfshópsins var að fara yfir skipulag og starfsumhverfi leikskólanna og leggja fram tillögur að úrbótum með þarfir barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi. Fjölskylduráð samþykkti tillögurnar á fundi sínum 5. október 2026.
Til máls tóku: Herdís Magna Gunnarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þórey Birna Jónsdóttir, Ívar Karl Hafliðason.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Sveitarstjórn felur fjölskylduráði að innleiða tillögurnar og leggja til nauðsynlegar breytingar á reglum í samræmi við þær. Jafnframt er sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu falið að auglýsa breytingarnar og kynna þær öllum hlutaðeigandi með góðum fyrirvara. Breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Samkomusalur í Valaskjálf

Málsnúmer 202607130Vakta málsnúmer

Fyrir liggur þarfa- og kostnaðargreining fyrir bæjarskrifstofu Múlaþings á Egilsstöðum, dagsett 1. október 2026. Málið var tekið fyrir í byggðaráði Múlaþings 6. október 2026 sem vísaði því til umfjöllunar í sveitarstjórn.
Til máls tók: Hólmfríður Rut Einarsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings hefur yfirfarið minnisblað um þarfagreiningu og kostnaðargreiningu fyrir bæjarskrifstofu sveitarfélagsins á Egilsstöðum.

Sveitarstjórn tekur undir niðurstöðu byggðaráðs. Núverandi húsnæði að Lyngási 12 svarar rýmisþörf stjórnsýslunnar, en hótelhluti Valaskjálfar gerir það ekki einn og sér, og fjárhagsleg áhrif kaupa og endurbóta eru umfram þann kost að endurbæta núverandi húsnæði.

Sveitarstjórn staðfestir því afgreiðslu byggðaráðs og hafnar kaupum á Valaskjálf.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga

Málsnúmer 202610016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun byggðaráðs frá 6. október 2026 þar sem samþykkt var að Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri færi með atkvæði Múlaþings á stofnfundi Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga sem fram fór 7. október 2026. Fyrir sveitarstjórn liggur að staðfesta aðild sveitarfélagsins að samtökunum.
Til máls tóku: Þórey Birna Jónsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Ívar Karl Hafliðason, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Herdís Magna Gunnarsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings staðfestir aðild sveitarfélagsins að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Heimastjórn Borgarfjarðar - 73

Málsnúmer 2609018FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Borgarfjarðar frá 1. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Heimastjórn Djúpavogs - 74

Málsnúmer 2609004FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Djúpavogs frá 2. október 2026.
Til máls tók: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 7, Eiður Ragnarsson um lið 7, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 7, Ívar Karl Hafliðason um lið 7.

Lagt fram til kynningar.

8.Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 73

Málsnúmer 2609024FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Fljótsdalshéraðs frá 8. október 2026.
Til máls tók: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 7, Eiður Ragnarsson um lið 7, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 7, Ívar Karl Hafliðason um lið 7.

Lagt fram til kynningar.

9.Heimastjórn Seyðisfjarðar - 72

Málsnúmer 2609003FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Seyðisfjarðar frá 1. október 2026.
Til máls tók: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 7, Ívar Karl Hafliðason um lið 2, Eiður Ragnarsson um liði 7 og 2, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 7, Ívar Karl Hafliðason um lið 7.

Lagt fram til kynningar.

10.Byggðaráð Múlaþings - 199

Málsnúmer 2609009FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 15. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Byggðaráð Múlaþings - 200

Málsnúmer 2609013FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 22. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

12.Byggðaráð Múlaþings - 201

Málsnúmer 2609023FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 6. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192

Málsnúmer 2609006FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 14. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 193

Málsnúmer 2609012FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 21. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

15.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 194

Málsnúmer 2609019FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 28. september 2026.
Til máls tók: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 11.

Lagt fram til kynningar.

16.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 195

Málsnúmer 2609026FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 5. október 2026.
Til máls tóku: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 13, Þórhildur Katrín Stefánsdóttir um lið 13, Ásrún Mjöll sem svaraði Þórhildi Katrínu um lið 13, Ívar Karl Hafliðason um lið 13, Ásrún Mjöll sem svaraði Ívari Karli um lið 13, Ívar Karl sem svaraði Ásrúnu Mjöll um lið 13, Þórhildur Katrín sem svaraði Ásrúnu Mjöll um lið 13, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 13, Ívar Karl sem svaraði Helga Hlyni um lið 13, Ásrún Mjöll sem svaraði Ívari Karli um lið 13, Þórhildur Katrín sem svaraði Ásrúnu Mjöll og Helga Hlyni um lið 13, Eiður Ragnarsson um lið 13, Ívar Karl Hafliðason um lið 12.

Lagt fram til kynningar.

17.Fjölskylduráð Múlaþings - 167

Málsnúmer 2609007FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 14. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

18.Fjölskylduráð Múlaþings - 168

Málsnúmer 2609015FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 21. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

19.Fjölskylduráð Múlaþings - 169

Málsnúmer 2609020FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 28. september 2026.
Til máls tók: Ívar Karl Hafliðason um lið 1, Dagmar Ýr Stefánsdóttir um lið 1.

Lagt fram til kynningar.

20.Fjölskylduráð Múlaþings - 170

Málsnúmer 2610001FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 5. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

21.Skýrsla sveitarstjóra 2026

Málsnúmer 202601052Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir og kynnti helstu mál sem hann hefur unnið að undanförnu og þau verkefni sem fram undan eru.

Fundi slitið - kl. 14:42.

Getum við bætt efni þessarar síðu?