Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur erindi frá Ásrúnu Mjöll Stefánsdóttur V-lista, þar sem óskað er eftir því að meirihluti ráðsins samþykki að starfsmönnum sé falið að afla gagna um eftirfarandi:
1.Upplýsingum um hafnarsvæði Múlaþings á Seyðisfirði og leyfisveitingar vegna mannvirkjagerðar innan þeirra. Uppdrátt á korti.
2.Auk þess uppdrátt á korti af eftirfarandi atriðum:
a. Ytri mörk hafnarsvæðis
b. Nýtingarreitir strandsvæðaskipulags
c. Kvíar, akkeri og festingar á fyrirhuguðu sjókvíaeldi hjá Kaldvík
d. Netlög (líka út frá eyjum og skerjum)
e. Helgunarsvæði hafstrengs
f. Siglingaleið/ljósgeirar
g. Ofanflóðasvæði/ferla
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið og felur formanni að fara yfir efni þess í samráði við verkefnastjóra skipulagsmála, með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi. Við yfirferðina verði metið hvaða upplýsingar liggja þegar fyrir og hvort þörf sé á frekari gagnaöflun. Niðurstaða yfirferðarinnar og tillögur að næstu skrefum verða lagðar fyrir ráðið.
Samþykkt með 5 atkvæðum, 2 á móti (ÁMS og GB).
Fulltrúar v-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar V-lista telja óásættanlegt í ljósi aðstæðna að afgreiðsla ráðsins sé svo óskýr að ekki verði ráðið af henni hvort fallist hafi verið á erindið eða ekki.
Erindið felur í sér skýra og afmarkaða beiðni um tiltekin gögn og framsetningu þeirra á korti. Það ætti því að vera einfalt að taka afstöðu til þess hvort afla eigi þeirra upplýsinga sem óskað er eftir.
Fulltrúar V-lista hafa óskað eftir skýrri staðfestingu á því að sú vinna sem vísað er til feli í sér öflun þeirra gagna og gerð þess kortauppdráttar sem tilgreind eru í erindinu. Meirihlutinn hefur ekki viljað veita þá staðfestingu.
Fulltrúar V-lista telja því að með þessari afgreiðslu sé komist hjá því að taka skýra afstöðu til erindisins. Ekki verður séð að erindið hafi verið samþykkt þegar meirihlutinn fæst ekki til að staðfesta að þær upplýsingar sem óskað er eftir verði í raun teknar saman.