Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

195. fundur 05. október 2026 kl. 13:00 - 16:32 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Björg Eyþórsdóttir varamaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson varamaður
  • Þórir Stefánsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Sveitastjóri Múlaþings, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, og slökkvistjóri Múlaþings, Haraldur Geir Eðvaldsson, sitja fundinn undir lið 1.

Hafnastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, situr fundinn undir liðum 2.-8.

Yfirhafnavörður, Rúnar Gunnarsson, situr fundinn undir liðum 2.-6.

Sviðsstjóri fjármála, Ingvar Rafn stefánsson, situr fundinn undir lið 4.

Verkefnastjóri skipulagsmála, Sóley Valdimarsdóttir, situr fundinn undir lið 9 og lið 13.

Verkefnastjóri framkvæmdamála, Rúnar Matthíasson, situr fundinn undir lið 10.

Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða að bæta inn sem 13. lið "Erindi, gagnaöflun og kortlagnin í Seyðisfirði".
Tillagan tekin til afgreiðslu og samþykkt samhljóða.
Uppfærist röð dagskráliða samkvæmt því.

1.Skýrsla slökkviliðsstjóra

Málsnúmer 202601061Vakta málsnúmer

Slökkvistjóri Múlaþings fer yfir málefni slökkviliðsins.
Lagt fram til kynningar.

2.Skýrsla hafnastjóra

Málsnúmer 202601063Vakta málsnúmer

Hafnastjóri og yfirhafnavörður fara yfir stöðu verkefna hjá höfnum Múlaþings.

Lagðar eru fram til kynningar mælingar vegna mengunarmæla við Strandabakka á Seyðisfirði í tengslum við skemmtiferðaskip. Mælingin fór fram á tímabilinu 21. maí - 8. september 2026, í samtals 111 daga, og voru unnar af Verkfræðistofunni Vista ehf.
Lagt fram til kynningar.

3.Fundargerðir stjórnar Hafnasamband Íslands

Málsnúmer 202601221Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram til kynningar fundargerðir 484. og 485. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands, dagsettar 19. ágúst og 7. september.
Lagt fram til kynningar.

4.Fjárhagsáætlun hafna Múlaþings 2027

Málsnúmer 202610013Vakta málsnúmer

Fjármálastjóri og hafnarstjóri sitja fundinn undir þessum lið og kynna drög að fjárhags- og fjárfestingaráætlunum Hafna Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun og vísar henni til fyrri umræðu hjá sveitarstjórn. Fjárfestingaráætlun er áfram í vinnslu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Komur skemmtiferðaskipa í Múlaþingi 2026 og 2027

Málsnúmer 202608157Vakta málsnúmer

Hafnastjóri situr fundinn undir þessum lið.

Lögð er fram til kynningar skýrsla frá Cruise Iceland um stöðu og horfur skemmtiferðaskipa á Íslandi.
Lagt fram til kynningar.

6.Hafnasambandsþing 2026

Málsnúmer 202608113Vakta málsnúmer

Hafnastjóri situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur að skipa fulltrúa úr ráðinu til að mæta á Hafnasambandsþing 2026. Hafnasambandsþing 2026 fer fram á Suðurnesjum dagana 22.-23. október í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur hafnastjóra að skrá þá fulltrúa sem taka munu þátt í Hafnasambandþingi 2026 fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Umsókn um framkvæmdaleyfi, vegslóði og bílastæði út á sanda

Málsnúmer 202604196Vakta málsnúmer

Hafnastjóri situr fundinn undir þessum lið.

Tekið er fyrir að nýju, að lokinni umfjöllun hjá heimastjórn Djúpavogs, umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir vegslóða og bílastæði út á sanda á Djúpavogi.

Heimastjórn Djúpavogs bókaði á 73. fundi sínum, að leggja til við umhverfis- og framkvæmdaráð að flugbrautin verði aflögð, og þá í kjölfarið nýtt sem samgönguleið að söndunum og hvetur heimastjórn umhverfis- og framkvæmdaráð til að vinna drög að skipulagi svæðisins með hliðsjón af breyttri nýtingu þess.
Frestað til næsta fundar.

8.Umhverfishönnun, Seyðisfjörður, umhverfis Lónið

Málsnúmer 202502044Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda fer yfir fyrstu hugmyndir að umhverfishönnun umhverfis Lónið og kynnir fyrir ráðinu.
Frestað til næsta fundar.

9.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur tillaga að nýju Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045 ásamt fylgigögnum og skrá um vegi í náttúru Íslands. Tillagan hefur verið uppfærð í samræmi við afgreiðslu umhverfis- og framkvæmdaráðs á þeim umsögnum sem bárust við auglýsingu skipulagstillögunnar.

Jafnframt liggja fyrir til samþykktar, drög að samkomulagi við Minjastofnun Íslands vegna skráningar á menningarminjum í Múlaþingi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi skipulagstillögu, ásamt fylgigögnum og skrá um vegi í náttúru Íslands. Ráðið vísar málinu til samþykktar hjá sveitarstjórn Múlaþings í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir jafnframt fyrirliggjandi drög að samkomulagi við Minjastofnun Íslands.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

10.Bókasafn - skrifstofur í Herðubreið á Seyðisfirði, starfshópur

Málsnúmer 202601142Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri framkvæmdamála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggja hönnunargögn vegna útboðs á bókasafni og bæjarskrifstofum í Herðubreið á Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur starfsmönnum að bjóða verkið út.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

11.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, framkvæmdaáætlun 2026-

Málsnúmer 202603088Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að staðfesta verkefni til umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir umsóknarárið 2027. Umsóknarfrestur í sjóðinn er 27. október næstkomandi.

Heimastjórnir hafa þegar fengið tækifæri til að rýna fyrirliggjandi hugmyndir og bæta við sínum áherslum. Verkefnin hafa jafnframt verið rýnd af starfmönnum og forgangsraðað.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Lagt er til að sótt verði um eftirtalin verkefni í framkvæmdasjóð ferðamannastaða:
- Búlandsnes og sandar.
- Útsýnispallur við Gufufoss.
- Bílastæði og útsýnispallar við Fardagafoss.

Starfsmanni falið að vinna umsóknirnar áfram.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

12.Hjólabraut á Egilsstöðum

Málsnúmer 202607135Vakta málsnúmer

Jákvæð umsögn skólastjóra Egilsstaðaskóla liggur fyrir, ásamt umsögn Start Akstursíþróttaklúbbs varðandi fyrirhugaða staðsetningu hjólabrautarinnar.
Liggur fyrir ráðinu að taka afstöðu til staðsetningar á hjólabrautinni sem og stofnunar lóðarinnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að stofnuð verði lóð um hjólabrautina á fyrirhugaðri staðsetningu, með vísan í bókun heimastjórn Fljótsdalshéraðs á 71. fundi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

13.Erindi, gagnaöflun og kortlagning í Seyðisfirði

Málsnúmer 202610027Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur erindi frá Ásrúnu Mjöll Stefánsdóttur V-lista, þar sem óskað er eftir því að meirihluti ráðsins samþykki að starfsmönnum sé falið að afla gagna um eftirfarandi:

1.Upplýsingum um hafnarsvæði Múlaþings á Seyðisfirði og leyfisveitingar vegna mannvirkjagerðar innan þeirra. Uppdrátt á korti.

2.Auk þess uppdrátt á korti af eftirfarandi atriðum:
a. Ytri mörk hafnarsvæðis
b. Nýtingarreitir strandsvæðaskipulags
c. Kvíar, akkeri og festingar á fyrirhuguðu sjókvíaeldi hjá Kaldvík
d. Netlög (líka út frá eyjum og skerjum)
e. Helgunarsvæði hafstrengs
f. Siglingaleið/ljósgeirar
g. Ofanflóðasvæði/ferla
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið og felur formanni að fara yfir efni þess í samráði við verkefnastjóra skipulagsmála, með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi. Við yfirferðina verði metið hvaða upplýsingar liggja þegar fyrir og hvort þörf sé á frekari gagnaöflun. Niðurstaða yfirferðarinnar og tillögur að næstu skrefum verða lagðar fyrir ráðið.

Samþykkt með 5 atkvæðum, 2 á móti (ÁMS og GB).

Fulltrúar v-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar V-lista telja óásættanlegt í ljósi aðstæðna að afgreiðsla ráðsins sé svo óskýr að ekki verði ráðið af henni hvort fallist hafi verið á erindið eða ekki.
Erindið felur í sér skýra og afmarkaða beiðni um tiltekin gögn og framsetningu þeirra á korti. Það ætti því að vera einfalt að taka afstöðu til þess hvort afla eigi þeirra upplýsinga sem óskað er eftir.
Fulltrúar V-lista hafa óskað eftir skýrri staðfestingu á því að sú vinna sem vísað er til feli í sér öflun þeirra gagna og gerð þess kortauppdráttar sem tilgreind eru í erindinu. Meirihlutinn hefur ekki viljað veita þá staðfestingu.
Fulltrúar V-lista telja því að með þessari afgreiðslu sé komist hjá því að taka skýra afstöðu til erindisins. Ekki verður séð að erindið hafi verið samþykkt þegar meirihlutinn fæst ekki til að staðfesta að þær upplýsingar sem óskað er eftir verði í raun teknar saman.

Fundi slitið - kl. 16:32.

Getum við bætt efni þessarar síðu?