Fara í efni

Deiliskipulagsbreyting, Hótel Eyvindará, fjölgun smáhýsa

Málsnúmer 202610034

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 196. fundur - 19.10.2026

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur umsókn um breytingu á deiliskipulagi ferðaþjónustu á Eyvindará II. Breytingin felst í að fjölga byggingarreitum fyrir smáhýsi um tvo.
Breyting víkur ekki frá notkun svæðisins.
Breyting á útliti felst í nýbyggingum sem eru að formi í samræmi við aðrar byggingar á skipulagssvæðinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi skipulagsbreytingu og málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir ráðið, með vísan til gr. 5.9.3. í skipulagsreglugerð, að fallið verði frá grenndarkynningu breytinganna.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Fylgiskjöl:
Getum við bætt efni þessarar síðu?