Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

196. fundur 19. október 2026 kl. 13:00 - 16:16 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson varamaður
  • Þórir Stefánsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Sviðsstjóri fjármála, Ingvar Rafn Stefánsson, situr fundinn undir liðum 1.-2.

Verkefnastjóri skipulagsmála, Sóley Valdimarsdóttir, situr fundinn undir liðum 3.-8.

1.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála situr fundinn undir þessum lið og kynnir drög að fjárhagsáætlun umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Drögin eru lögð fyrir ráðið til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

2.Fjárfestingaráætlun 2027

Málsnúmer 202610125Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála situr fundinn undir þessum lið.

Sviðsstjóri framkvæmda fer yfir drög að fjáfestingaráætlunar hjá umhverfis- og framkvæmdasviði. Drögin eru lögð fyrir ráðið til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

3.Deiliskipulagsbreyting, Hótel Eyvindará, fjölgun smáhýsa

Málsnúmer 202610034Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur umsókn um breytingu á deiliskipulagi ferðaþjónustu á Eyvindará II. Breytingin felst í að fjölga byggingarreitum fyrir smáhýsi um tvo.
Breyting víkur ekki frá notkun svæðisins.
Breyting á útliti felst í nýbyggingum sem eru að formi í samræmi við aðrar byggingar á skipulagssvæðinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi skipulagsbreytingu og málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir ráðið, með vísan til gr. 5.9.3. í skipulagsreglugerð, að fallið verði frá grenndarkynningu breytinganna.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Fylgiskjöl:

4.Aðalskiplag Vopnafjarðarhrepps til 2040, heildarendurskoðun

Málsnúmer 202610036Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur umsagnarbeiðni um tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps til ársins 2040, mál nr. 196/2024 í Skipulagsgátt. Umsagnarfrestur er til og með 19. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi skipulagstillögu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Verkefnalýsing vegna endurskoðunar stjórnunar og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs í kynningu

Málsnúmer 202610010Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur verkefnalýsing vegna heildarendurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs.
Náttúruverndarstofnun hefur óskað eftir umsögnum og ábendingum við verkefnislýsinguna, með umsagnarfresti til og með 28. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Umsagnarbeiðni um 88.mál, tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvál.

Málsnúmer 202610110Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd, um 88. mál frá 158. löggjafarþingi 2026-2027, það er tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.
Umsagnarfrestur er til og með 27. október nk. og skal umsögnum skilað í gegnum umsagnagátt Alþingis.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð fagnar fyrirliggjandi tillögu til þingsályktunar, en bendir á að við forgangsröðun varna sé samfélagslegt mikilvægi verkefna haft að leiðarljósi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Umsagnarbeiðni um 202. mál, Loftslagslög

Málsnúmer 202610134Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd, um 202. mál frá 158. löggjafarþingi 2026-2027, það er frumvarp til loftslagslaga.
Umsagnarfrestur er til og með 29. október nk. og skal umsögnum skilað í gegnum umsagnagátt Alþingis.
Frestað til næsta fundar.

8.Umsókn um framkvæmdaleyfi, vegslóði og bílastæði út á sanda

Málsnúmer 202604196Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Tekið er fyrir að nýju, að lokinni umfjöllun hjá heimastjórn Djúpavogs, umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir vegslóða og bílastæði út á sanda á Djúpavogi.

Heimastjórn Djúpavogs bókaði á 73. fundi sínum, að leggja til við umhverfis- og framkvæmdaráð að flugbrautin verði aflögð, og þá í kjölfarið nýtt sem samgönguleið að söndunum og hvetur heimastjórn umhverfis- og framkvæmdaráð til að vinna drög að skipulagi svæðisins með hliðsjón af breyttri nýtingu þess.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir, með vísan til bókunar heimastjórnar Djúpavogs og framkominna umsagna við grenndarkynningu, að falla frá fyrirhugaðri framkvæmd nýs vegar út á sanda. Jafnframt samþykkir ráðið að óska eftir því við Isavia Innanlandsflugvelli ohf. að flugvöllurinn verði afskráður sem lendingarstaður. Svæðið verði áfram skilgreint fyrir flugvöll í aðalskipulagi, þrátt fyrir að það verði ekki lengur skráð sem lendingarstaður. Heimilt verði áfram að nýta svæðið sem aðkomuleið út á sanda, enda raski sú nýting ekki starfsemi eða skipulagslegri skilgreiningu svæðisins sem flugvallar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Hundasvæði á Djúpavogi

Málsnúmer 202306179Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun heimastjórnar Djúpavogs frá 2. október 2026 um hundasvæði á Djúpavogi. Minnisblað starfsmanns heimastjórnar skilgreinir svæði sem lagt er fyrir umhverfis- og framkvæmdaráð til samþykktar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tillögu heimastjórnar Djúpavogs af hundasvæði á Djúpavogi og felur starfsmanni heimastjórnar að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

10.Ósk um úthlutun svæðis fyrir hjólabraut á Borgarfirði

Málsnúmer 202608016Vakta málsnúmer

Heimastjórn Borgarfjarðar vísaði erindi Árna Magnúsar Magnusson, dagsett 28. júlí 2026, til umfjöllunar hjá umhverfis- og framkvæmdaráði. Í gildandi aðalskipulagi er svæðið sem um ræðir skilgreint sem íþróttasvæði.
Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til staðsetningar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að úthluta svæði sem merkt er C austan við fótboltavöll undir fyrirhugað hjólasvæði. Sviðstjóra framkvæmda er falið að vinna málið áfram.
Ráðið leggur áherslu á að fyrirkomulag um ábyrgð og utanumhald svæðisins sé skýrt.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

11.Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026

Málsnúmer 202602153Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundagerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands dagsettar.12.02, 28.05, 03.09, 23.09. og 06.10.2026.
Lagt fram til kynningar.

12.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð starfshóps um uppbyggingu íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum þann 6. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Skýrsla sviðsstjóra framkvæmda

Málsnúmer 202512240Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda, Hugrún Hjálmarsdóttir, fer yfir stöðu verkefna á sviðinu.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:16.

Getum við bætt efni þessarar síðu?