Fara í efni

Tillaga um hágæðasjúkrahús á Austurlandi

Málsnúmer 202610089

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 74. fundur - 09.11.2026

Fyrir liggur erindi frá íbúa, dagsett 7. október 2026, með tillögu um að heimastjórn Fljótsdalshéraðs beini því til sveitarstjórnar Múlaþings að skora á Alþingi að fela heilbrigðisráðherra að skipa starfshóp til mótunar stefnu og aðgerðaáætlunar um byggingu hágæðasjúkrahúss á Austurlandi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar fyrir erindið. Heimastjórn tekur undir mikilvægi þess að efla heilbrigðisþjónustu á Austurlandi og vísar erindinu til umfjöllunar í byggðaráði Múlaþings.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?