Fara í efni

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

74. fundur 09. nóvember 2026 kl. 10:00 - 12:00 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Eiður Ragnarsson formaður
  • Anna H. Bragadóttir aðalmaður
  • Hafsteinn Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Landbótasjóður 2026

Málsnúmer 202607049Vakta málsnúmer

Þorvaldur Hjarðar, formaður stjórnar Landbótasjóðs Norður-Héraðs, mætir á fund heimastjórnar og kynnir starfsemi sjóðsins.
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar Þorvaldi fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Lagt fram til kynningar.

2.Tillaga um hágæðasjúkrahús á Austurlandi

Málsnúmer 202610089Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá íbúa, dagsett 7. október 2026, með tillögu um að heimastjórn Fljótsdalshéraðs beini því til sveitarstjórnar Múlaþings að skora á Alþingi að fela heilbrigðisráðherra að skipa starfshóp til mótunar stefnu og aðgerðaáætlunar um byggingu hágæðasjúkrahúss á Austurlandi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar fyrir erindið. Heimastjórn tekur undir mikilvægi þess að efla heilbrigðisþjónustu á Austurlandi og vísar erindinu til umfjöllunar í byggðaráði Múlaþings.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Verkefnalýsing vegna endurskoðunar stjórnunar og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs í kynningu

Málsnúmer 202610010Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Vatnajökulsþjóðgarði þar sem kynnt er verkefnislýsing vegna endurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar þjóðgarðsins og óskað eftir umsögnum og ábendingum. Frestur til að skila umsögn er til og með 25. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs gerir ekki athugasemdir við verkefnislýsinguna. Starfsmanni falið að koma bókuninni á framfæri við Vatnajökulsþjóðgarð.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Sænautasel

Málsnúmer 202209144Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslu um stöðu Sænautasels, en samningur um leigu á staðnum rennur út 31. desember 2026. Byggðaráð Múlaþings tók málið fyrir á fundi 3. nóvember 2026 og vísaði því til umsagnar hjá heimastjórn Fljótsdalshéraðs. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Vordís Svala Jónsdóttir, verkefnisstjóri framkvæmdamála í Múlaþingi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar Vordísi fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Heimastjórn felur starfsmanni að skila umsögn til byggðaráðs í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Erindi vegna flutnings á sauðfé úr Melarétt

Málsnúmer 202611015Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Baldri Grétarssyni, dagsett 2. nóvember 2026, vegna flutnings á sauðfé úr Melarétt í Fljótsdal. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar Baldri Grétarssyni erindið. Samkvæmt 27. gr. fjallskilasamþykktar nr. 340/2023 ber fjáreiganda að hirða fé sitt úr rétt svo fljótt sem við verður komið. Í gangnaseðli haustsins kom fram að ekki yrði greitt fyrir fjárflutninga. Heimastjórn sér því ekki forsendur til að breyta fyrri afgreiðslu. Heimastjórn tekur þó undir að skýra þurfi verklag við að sækja fé úr Múlaþingi á réttir í nágrannasveitarfélögum. Hún felur fjallskilastjóra að tryggja að það komi fram í gangnaseðli haustið 2027.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Girðingar í dreifbýli og viðhald þeirra

Málsnúmer 202305086Vakta málsnúmer

Fyrir heimastjórn liggur að fjalla um girðingar í dreifbýli og viðhald þeirra. Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála, kemur inn á fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar verkefnastjóra umhverfismála fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Heimastjórn felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna úttekt á girðingu í Fellum sem liggur frá Hafrafelli að Ási, og leggja fyrir næsta fund heimastjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Áætlun eignamarka, jarðir í eigu Múlaþings

Málsnúmer 202610186Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) að áætlun um eignamörk jarða á Norðaustur- og Austurlandi, þar á meðal fyrir 22 jarðir í eigu Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs hvetur landeigendur til að kynna sér gögn HMS varðandi landamerki.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Íbúafundir heimastjórnar Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 202605018Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að breyta dagsetningu íbúafundar heimastjórnar Fljótsdalshéraðs. Á síðasta fundi var samþykkt að halda fundinn miðvikudaginn 18. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir að íbúafundurinn verði haldinn miðvikudaginn 25. nóvember 2026 en ekki 18. nóvember eins og áður var ákveðið. Formanni og starfsmanni er falið að undirbúa og auglýsa fundinn í samræmi við það.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?