Fara í efni

Innsent erindi, Reiðhöllin á Iðavöllum, ástand

Málsnúmer 202610124

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 199. fundur - 16.11.2026

Við upphaf máls vakti fulltrúi D-lista, Þórhallur Borgarsson, máls á mögulegu vanhæfi sínu og var tillaga þess efnis borin upp og samþykkt samhljóða. Þórhallur vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu máls.

Verkefnastjóri framkvæmdamála, situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur erindi frá stjórn Hestamannafélagins Freyfaxa, vegna ástands reiðhallarinnar á Iðavöllum og opinberri skýrslu þar um.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela formanni ráðsins að vinna málið áfram með starfsfólki sveitarfélagsins.
Málið er áfram í vinnslu og verður tekið fyrir að nýju þegar frekari gögn liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða.

Getum við bætt efni þessarar síðu?