Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

199. fundur 16. nóvember 2026 kl. 13:00 - 15:10 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Þórhallur Borgarsson aðalmaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson varamaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
Verkefnastjóri framkvæmdamála, Vordís Jónsdóttir, sat fundinn undir lið 1.
Hafnarstjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, og Aron Thorarensen, yfirlögfræðingur, sátu fundinn undir lið nr. 18.

1.Innsent erindi, Reiðhöllin á Iðavöllum, ástand

Málsnúmer 202610124Vakta málsnúmer

Við upphaf máls vakti fulltrúi D-lista, Þórhallur Borgarsson, máls á mögulegu vanhæfi sínu og var tillaga þess efnis borin upp og samþykkt samhljóða. Þórhallur vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu máls.

Verkefnastjóri framkvæmdamála, situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur erindi frá stjórn Hestamannafélagins Freyfaxa, vegna ástands reiðhallarinnar á Iðavöllum og opinberri skýrslu þar um.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela formanni ráðsins að vinna málið áfram með starfsfólki sveitarfélagsins.
Málið er áfram í vinnslu og verður tekið fyrir að nýju þegar frekari gögn liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða.

2.Deiliskipulagsbreyting, Úlfsstaðaholt

Málsnúmer 202607003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Úlfsstaðaholts en málið var áður tekið fyrir á fundi ráðsins þann 6. júlí 2026. Tillagan er unnin af LOGG landfræði & ráðgjöf slf. fyrir hönd Austurbygg verktaka ehf.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi skipulagstillögu sem unnin hefur verið í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir ráðið, með vísan til gr. 5.9.3. í skipulagsreglugerð, að fallið verði frá grenndarkynningu breytingarinnar.

Samþykkt samhljóða.

3.Umsókn um lóð, Dalsel 1-5, Egilsstaðir

Málsnúmer 202608048Vakta málsnúmer

Fyrir liggja umsagnir frá HEF veitum, RARIK og Minjastofnun Íslands vegna breytingar á deiliskipulagi Selbrekku á Egilsstöðum sem varðar byggingarlóð við Dalsel 1. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með athugasemdafresti til og með 28. október sl. Engar athugasemdir bárust.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvædmaráð samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Selbrekku, 2. áfangi-efra svæði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Ráðið samþykkir jafnframt að lóðinni Dalsel 1 (L205241) verði úthlutað til málsaðila þegar skipulagsbreyting hefur tekið gildi.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um framkvæmdaleyfi, efnistaka, Bauluhvammur

Málsnúmer 202610057Vakta málsnúmer

Fyrir ráðinu liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni fyrir efnistöku úr námu E379 við Bauluhvamm í Berufirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsókn um framkvæmdaleyfi og felur skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið í samræmi við fyrirliggjandi gögn.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um skráningu landeigna í fasteignaskrá, Hólmi 1 og 2

Málsnúmer 202610207Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Ásól ehf. um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá. Stofna á lóðir úr landi Eyrarteigs (L157419) sem fá heitið Hólmi 1 og Hólmi 2.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

6.Innsent erindi, Tilraunaræktun á Seyðisfirði

Málsnúmer 202609162Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá hópi íbúa á Seyðisfirði þar sem óskað er eftir afnotum af landi sveitarfélagsins innan við Þórsmörk í Seyðisfirði vegna fyrirhugaðra ræktunartilrauna á mat- og nytjajurtum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur vel í þær hugmyndir sem kynntar eru í erindinu og felur starfsfólki að vinna málið áfram og leggja það fyrir ráðið að nýju. Við þá vinnu verði skoðað hvernig aðkomu að svæðinu verði háttað og hvernig fyrirhuguð starfsemi fellur að núverandi notkun svæðisins.

Samþykkt samhljóða.

7.Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Bakkavegar af vegaskrá

Málsnúmer 202611033Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Bakkavegar (9492-01) á Borgarfirði af vegaskrá frá og með næstu áramótum. Verði af breytingunni mun viðhald og þjónusta vegarins falla niður af hálfu Vegagerðarinnar. Ákvörðunin er byggð á ákvæðum vegalaga um að vegir innan þéttbýlismarka geti ekki flokkast sem héraðsvegir. Sveitarfélaginu er gefinn kostur á að gera athugasemdir við fyrirhugaða ákvörðun fyrir 25. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir athugasemd við fyrirhugaða niðurfellingu Bakkavegar af vegaskrá og mótmælir því að veghald verði fært til sveitarfélagsins án nánara samráðs og formlegrar afhendingar. Ráðið telur nauðsynlegt að Vegagerðin leggi mat á ástand vegarins og tryggi að fyrir liggi skýr niðurstaða um ábyrgð á tilheyrandi vegamannvirkjum og kostnaði áður en breyting á veghaldi tekur gildi. Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir því að frekari gögn og boð um samráð berist frá Vegagerðinni áður en niðurfelling kemst til framkvæmda. Sviðsstjóra framkvæmda falið að fylgja málinu eftir.

Samþykkt samhljóða.

8.Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Vínlandsvegar af vegaskrá

Málsnúmer 202611036Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Vínlandsvegar (9297-01) í Fellabæ af vegaskrá frá og með næstu áramótum. Verði af breytingunni mun viðhald og þjónusta vegarins falla niður af hálfu Vegagerðarinnar. Ákvörðunin er byggð á ákvæðum vegalaga um að vegir innan þéttbýlismarka geti ekki flokkast sem héraðsvegir. Sveitarfélaginu er gefinn kostur á að gera athugasemdir við fyrirhugaða ákvörðun fyrir 25. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir athugasemd við fyrirhugaða niðurfellingu Vínlandsvegar af vegaskrá og mótmælir því að veghald verði fært til sveitarfélagsins án nánara samráðs og formlegrar afhendingar. Ráðið telur nauðsynlegt að Vegagerðin leggi mat á ástand vegarins og tryggi að fyrir liggi skýr niðurstaða um ábyrgð á tilheyrandi vegamannvirkjum og kostnaði áður en breyting á veghaldi tekur gildi. Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir því að frekari gögn og boð um samráð berist frá Vegagerðinni áður en niðurfelling kemst til framkvæmda. Sviðsstjóra framkvæmda falið að fylgja málinu eftir.

Samþykkt samhljóða.

9.Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu hluta Hánefsstaðavegar af vegaskrá Múlaþing

Málsnúmer 202611037Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu fyrstu 320m Hánefsstaðavegar (952-03) í Seyðisfirði af vegaskrá frá og með næstu áramótum. Verði af breytingunni mun viðhald og þjónusta vegarins falla niður af hálfu Vegagerðarinnar. Ákvörðunin er byggð á ákvæðum vegalaga um að vegir innan þéttbýlismarka geti ekki flokkast sem héraðsvegir. Sveitarfélaginu er gefinn kostur á að gera athugasemdir við fyrirhugaða ákvörðun fyrir 25. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir athugasemd við fyrirhugaða niðurfellingu hluta Hánefsstaðavegar af vegaskrá og mótmælir því að veghald verði fært til sveitarfélagsins án nánara samráðs og formlegrar afhendingar. Ráðið telur nauðsynlegt að Vegagerðin leggi mat á ástand vegarins og tryggi að fyrir liggi skýr niðurstaða um ábyrgð á tilheyrandi vegamannvirkjum og kostnaði áður en breyting á veghaldi tekur gildi. Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir því að frekari gögn og boð um samráð berist frá Vegagerðinni áður en niðurfelling kemst til framkvæmda. Sviðsstjóra framkvæmda falið að fylgja málinu eftir.

Samþykkt samhljóða.

10.Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Eiðavegar af vegaskrá

Málsnúmer 202611039Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Eiðavegar Bs(9433-01) og Eiðavegar (9435-01) á Eiðum af vegaskrá frá og með næstu áramótum. Verði af breytingunni mun viðhald og þjónusta vegarins falla niður af hálfu Vegagerðarinnar. Ákvörðunin er byggð á ákvæðum vegalaga um að vegir innan þéttbýlismarka geti ekki flokkast sem héraðsvegir. Sveitarfélaginu er gefinn kostur á að gera athugasemdir við fyrirhugaða ákvörðun fyrir 25. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir athugasemd við fyrirhugaða niðurfellingu Eiðavegar af vegaskrá og mótmælir því að veghald verði fært til sveitarfélagsins án nánara samráðs og formlegrar afhendingar. Ráðið telur nauðsynlegt að Vegagerðin leggi mat á ástand vegarins og tryggi að fyrir liggi skýr niðurstaða um ábyrgð á tilheyrandi vegamannvirkjum og kostnaði áður en breyting á veghaldi tekur gildi. Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir því að frekari gögn og boð um samráð berist frá Vegagerðinni áður en niðurfelling kemst til framkvæmda. Sviðsstjóra framkvæmda falið að fylgja málinu eftir.

Samþykkt samhljóða.

11.Fundir umhverfis- og framkvæmdaráðs 2026-2030

Málsnúmer 202606013Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi frá fulltrúa V-lista, Ásrúnu Mjöll Stefánsdóttur, með ósk um endurskoðun á fundartíma ráðsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð fellst ekki á að breyta fundartíma að svo stöddu en leggur áherslu á að fundarboð verði framvegis sent út fyrir kl. 16 á fimmtudögum.

12.Skýrsla sviðsstjóra framkvæmda

Málsnúmer 202512240Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda, Hugrún Hjálmarsdóttir, fer yfir stöðu verkefna á sviðinu.
Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026

Málsnúmer 202602153Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundagerð Heilbrigðisnefndar Austurlands frá 195. fundi sem haldinn var þann 30. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Fundargerðir svæðisráðs austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 2026

Málsnúmer 202603016Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundagerðir svæðisráðs austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs frá fundum 140 og 141, sem haldnir voru 9. september og 4. nóvember síðast liðinn.
Lagt fram til kynningar.

15.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundagerð starfshóps um framtíðaruppbyggingu Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum sem haldinn var þann 20. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

16.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Múlaþings - 39

Málsnúmer 2611006FVakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð frá 39. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

17.Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings - 18

Málsnúmer 2611008FVakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð frá 18. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

18.Eldisgjald

Málsnúmer 202610237Vakta málsnúmer

Hafnastjóri og yfirlögfræðingur sitja fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggja drög að samkomulagi um eldisgjald vegna löndunar eldisfisks í Djúpavogshöfn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi tímabundið samkomulag og felur hafnastjóra undirritun þess fyrir hönd sveitarfélagsins.
Ráðið felur jafnframt hafnarstjóra að láta framkvæma greiningu í samræmi við ákvæði samkomulagsins.

Samþykkt samhljóða.

Fulltrúar V-lista(ÁMS og GB) leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar V-lista fagna því að þessi tímabundni samningur sé í höfn eftir, að okkar mati, óeðlilega langan aðdraganda.

Fundi slitið - kl. 15:10.

Getum við bætt efni þessarar síðu?