Fara í efni

Könnun um kolefnisstjórnunarverkefni sveitarfélaga

Málsnúmer 202610148

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 205. fundur - 17.11.2026

Fyrir byggðarráði liggur bréf umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins vegna könnunar um kolefnisstjórnunarverkefni sveitarfélaga.

Könnuninni er ætlað að kanna áhuga sveitarfélaga á þátttöku í slíkum verkefnum og fá fram upplýsingar um forsendur, tækifæri og áskoranir. Könnunin er ekki bindandi.

Svarfrestur er til 20. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna drög að svörum Múlaþings við könnuninni. Drögin verði lögð fyrir byggðaráð til afgreiðslu áður en þeim verður skilað. Í svörunum komi fram að þátttaka í könnuninni og lýstur áhugi feli ekki í sér skuldbindingu sveitarfélagsins til þátttöku í einstökum verkefnum eða ráðstöfun fjármuna.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?