Málsnúmer 202611016Vakta málsnúmer
Fyrir liggur úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 29. október 2026 í máli nr. UUA2606013 um ákvörðun heilbrigðisnefndar Austurlands frá 28. maí 2026 um að gefa út starfsleyfi fyrir tjald- og hjólhýsasvæði við Kaupvang 17 á Egilsstöðum. Þá liggur fyrir erindi Austurfarar ehf., núverandi rekstraraðila á tjaldsvæðinu, til byggðaráðs. Inn á fundinn undir þessum lið mæta Heiður Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Austurfarar ehf., Alda Marín Kristinsdóttir, verkefnastjóri atvinnumála, og Sóley Valdimarsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.