Fyrir liggur úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 29. október 2026 í máli nr. UUA2606013 um ákvörðun heilbrigðisnefndar Austurlands frá 28. maí 2026 um að gefa út starfsleyfi fyrir tjald- og hjólhýsasvæði við Kaupvang 17 á Egilsstöðum. Þá liggur fyrir erindi Austurfarar ehf., núverandi rekstraraðila á tjaldsvæðinu, til byggðaráðs. Inn á fundinn undir þessum lið mæta Heiður Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Austurfarar ehf., Alda Marín Kristinsdóttir, verkefnastjóri atvinnumála, og Sóley Valdimarsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
Byggðaráð samþykkir að fela sveitarstjóra og verkefnastjóra atvinnumála að ræða við rekstaraðila tjaldsvæðisins um mögulegar leiðir til að fá nýtt starfsleyfi fyrir tjaldsvæðisreksturs við Kaupvang 17 á Egilsstöðum.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.