Fara í efni

Fjárhagslegur stuðningur vegna áskriftarkostnaðar sem fellur til hjá sveitarfélögum

Málsnúmer 202611049

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 174. fundur - 16.11.2026

Fyrir liggur til kynningar erindi frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um innleiðingu samræmdrar grunnskráningar í félagsþjónustu sveitarfélaga. Verkefnið miðar að því að samræma skráningu og miðlun upplýsinga um veitta félagsþjónustu og bæta þannig yfirsýn, tölfræði og stefnumótun á landsvísu. Jafnframt er kynntur fjárhagslegur stuðningur til sveitarfélaga vegna innleiðingar þjónustukerfa fyrir stuðnings- og stoðþjónustu.
Lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?