Fara í efni

Umsagnarbeiðni, Umsókn um rannsóknarleyfi á jarðhita við Urriðavatn

Málsnúmer 202611070

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 205. fundur - 17.11.2026

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Umhverfis- og orkustofnun, sem barst 6. nóvember 2026, vegna umsóknar HEF veitna ehf. um leyfi til rannsóknar og leitar að jarðhita við Urriðavatn. Í beiðninni er sveitarfélaginu sem umráðandi lands, Ekkjufellssel 9 L221207, í nágrenni fyrirhugaðs rannsóknarsvæðis veittur kostur á að koma á framfæri athugasemdum við umsóknina.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings gerir ekki athugasemdir við umsókn HEF veitna ehf. um leyfi til rannsóknar og leitar að jarðhita vegna þess lands sem umsóknin tekur til og er í eigu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?