Fara í efni

Garnaveikibólusetningar í Múlaþingi 2026

Málsnúmer 202611102

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 200. fundur - 23.11.2026

Þórhallur Borgarson (D-lista), Þórey Birna Jónsdóttir (B-lista) og Helgi Hlynur Ásgrímsson (V-lista), vöktu athygli á mögulegu vanhæfi sínu í upphafi máls. Formaður bar vanhæfið upp til atkvæðagreiðslu.
Ráðið samþykkti samhljóða að ÞB, ÞBJ og HHÁ væru vanhæfir við umræður og afgreiðslu málsins. ÞB, ÞBJ og HHÁ véku af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur minnisblað um styrkveitingu Múlaþings til fjáreigenda vegna garnaveikisbólusetninga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að veita styrk vegna garnaveikisbólusetningar á árinu 2026 í samræmi við umræður á fundinum. Upphæð skal rúmast innan fjárhagsáætlunar ársins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?