Fara í efni

Hafnarmannvirki Múlaþings

Málsnúmer 202611174

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 200. fundur - 23.11.2026

Hafnastjóri og yfirhafnavörður sitja fundinn undir þessum lið.

Á Hafnasambandsþingi 2026 kom fram að ástæða væri til að hafa áhyggjur af því að hafnarmannvirki víða um land væru vantryggð. Hafnarmannvirki eru verðmætir innviðir og mikilvægt að tryggingavernd þeirra taki mið af raunverulegu endurstofnvirði, enda getur tjón á slíkum mannvirkjum haft verulegar fjárhagslegar afleiðingar fyrir hafnarsjóð.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur starfsmönnum sveitarfélagsins að fara yfir tryggingar hafnarmannvirkja í höfnum Múlaþings, gera samantekt á tryggingavernd þeirra og leggja niðurstöðurnar fyrir ráðið að nýju.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?