Fara í efni

Samráðshópur Múlaþings um málefni fatlaðs fólks

7. fundur 30. apríl 2026 kl. 10:30 - 11:30 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Arnar Ágúst Klemensson aðalmaður
  • Fanney Sigurðardóttir aðalmaður
  • Matthías Þór Sverrisson aðalmaður
  • Guðný Margrét Hjaltadóttir aðalmaður
  • Jónína Brynjólfsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Anna Steinunn Árnadóttir deildastjóri í málefnum fatlaðs fólks
  • Guðbjörg Gunnarsdóttir deildastjóri í málefnum fatlaðs fólks
Fundargerð ritaði: Anna Steinunn Árnadóttir deildarstjóri málefna fatlaðs fólks

1.Könnun, Þörf á lyftum í byggingum í eigu sveitarfélagsins.

Málsnúmer 202512064Vakta málsnúmer

Erindi barst frá Öryrkjabandalagi Íslands um lyftur í byggingum sveitarfélagsins. Hugrún Hjálmarsdóttur, sviðsstjóri framkvæmda, fór yfir stöðuna á byggingum sveitarfélagsins með tillti til lyftuaðgengis.
Samráðshópur Múlaþings um málefni fatlaðs fólks þakkar Hugrúnu fyrir yfirferðina. Ráðið hvetur til þess að sótt verði um styrk til Fasteignasjóðs jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir lyftu í Herðubreið til að bæta aðgengismál þar, einnig er mikilvægt að gera lagfæringar á aðgengismálum utanhúss.
Samráðshópurinn hvetur framkvæmdasvið til að útbúa forgangslista aðgengisverkefna opinberra bygginga sveitarfélagsins.

2.Aðgengismál sveitarfélagsins

Málsnúmer 202603103Vakta málsnúmer

Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda og skipulagsfulltrúi fer yfir aðgengismál sveitarfélagsins. Kynnir fyrirkomulag aðgengisfulltrúa.
Samráðshópur Múlaþings um málefni fatlaðs fólks þakkar Hugrúnu fyrir yfirferðina.
Hópurinn ræddi sérstaklega húsnæðismál Stólpa sem að hefur verið til umfjöllunar. Ráðið vísar til Fjölskylduráðs að farið verður af stað með þarfagreiningu á húsnæði fyrir starfsemi Stólpa.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?