Fara í efni

Aðgengismál sveitarfélagsins

Málsnúmer 202603103

Vakta málsnúmer

Samráðshópur Múlaþings um málefni fatlaðs fólks - 7. fundur - 30.04.2026

Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda og skipulagsfulltrúi fer yfir aðgengismál sveitarfélagsins. Kynnir fyrirkomulag aðgengisfulltrúa.
Samráðshópur Múlaþings um málefni fatlaðs fólks þakkar Hugrúnu fyrir yfirferðina.
Hópurinn ræddi sérstaklega húsnæðismál Stólpa sem að hefur verið til umfjöllunar. Ráðið vísar til Fjölskylduráðs að farið verður af stað með þarfagreiningu á húsnæði fyrir starfsemi Stólpa.

Fjölskylduráð Múlaþings - 160. fundur - 19.05.2026

Á fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks þann 30. apríl sl., vísaði samráðshópurinn erindi til fjölskylduráðs er varðar þarfagreiningu á húsnæði Stólpa.
Málinu frestað til næsta fundar.

Samráðshópur Múlaþings um málefni fatlaðs fólks - 8. fundur - 30.09.2026

Kolbrún Erla Pétursdóttir er með athugasemdir varðandi aðgengismál innan sveitarfélagsins.
Arnar Ágúst Sigríðarson óskaði eftir að málið yrði tekið fyrir en forfallaðist á seinustu stundu.

Kolbrún fór því yfir þau aðgengismál í opinberum stofnunum og annarra fyrirtækja á Seyðisfirði sem henni datt í hug.

Starfsmanni er falið að óska eftir nánari útlistunum í skriflegu formi og verður málið áfram í vinnslu innan samráðshóps Múlaþings um málefni fatlaðs fólks.
Getum við bætt efni þessarar síðu?