Fara í efni

Samráðshópur Múlaþings um málefni fatlaðs fólks

8. fundur 30. september 2026 kl. 13:00 - 14:00 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Kolbrún Erla Pétursdóttir aðalfulltrúi
  • Matthías Þór Sverrisson aðalfulltrúi
  • Unnur Ólöf Tómasdóttir aðalfulltrúi
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir varafulltrúi
Starfsmenn
  • Anna Steinunn Árnadóttir deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks
  • Helga Sjöfn Hrólfsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Helga Sjöfn Hrólfsdóttir Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks

1.Hlutverk og kosning í embætti samráðshóps um málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 202609151Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur fyrir að kjósa formann og varaformann, ásamt því að ákveða hlutverk innan hópsins.
Gengið var til kosninga, tillaga um að Unnur Ólöf Tómasdóttir verði formaður Samráðshópsins og Arnar Ágúst Sigríðarson varaformaður, þetta var samþykkt samhljóða. Umræða innan hópsins um hlutverk og starfið framundan. Starfsmanni falið að boða næsta fund samráðshóps fyrir áramót, kynna hlutverk samráðshóps og kanna möguleikann á að auglýsa eftir erindum fyrir fundi og möguleikann á að halda íbúafund.

2.Aðgengismál sveitarfélagsins

Málsnúmer 202603103Vakta málsnúmer

Kolbrún Erla Pétursdóttir er með athugasemdir varðandi aðgengismál innan sveitarfélagsins.
Arnar Ágúst Sigríðarson óskaði eftir að málið yrði tekið fyrir en forfallaðist á seinustu stundu.

Kolbrún fór því yfir þau aðgengismál í opinberum stofnunum og annarra fyrirtækja á Seyðisfirði sem henni datt í hug.

Starfsmanni er falið að óska eftir nánari útlistunum í skriflegu formi og verður málið áfram í vinnslu innan samráðshóps Múlaþings um málefni fatlaðs fólks.

Fundi slitið - kl. 14:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?