Fara í efni

Byggingarlóðir

Lóðamál heyra undir skipulagsfulltrúa Múlaþings. Málaflokkurinn tekur til stofnun lóða, breytinga á lóðum ásamt afgreiðslu og úthlutun lóða.

Lausar lóðir

Upplýsingar um lausar lóðir í Múlaþingi eru birtar á kortasjá sveitarfélagsins (haka þarf við Lausar lóðir til að þær sjáist). Þar er hægt að nálgast lóðablöð viðkomandi lóða, gildandi deiliskipulag auk upplýsinga um gatnagerðargjöld og afslætti.

Áhugasömum aðilum um uppbyggingu miðbæjar á Egilsstöðum er bent á að hafa samband við framkvæmda- og umhverfismálastjóra.

Áhugasamir aðilar um iðnaðar- eða athafnalóðir á Borgarfirði eða Djúpavogi eru hvattir til að hafa samband við skipulagsfulltrúa.

Lóðaúthlutun

Sveitarfélagið Múlaþing leitast á hverjum tíma við að geta boðið fram byggingarlóðir sem mæta þörfum sem flestra sem vilja byggja í sveitarfélaginu. Umhverfis- og framkvæmdaráð ákvarðar um úthlutanir á nýjum byggingarlóðum í samræmi við 3. grein í reglum um úthlutun lóða í Múlaþingi.

Umsókn og úthlutun lóða

Umsóknir um byggingarlóð er send í gegnum Mínar síður. Umsóknaraðilum um byggingarlóðir er bent á að kynna sér reglur um úthlutun lóða ásamt gjaldskrá sveitarfélagsins áður en sótt er um lóðir.

Gjaldtaka

Sveitarfélagið tekur ákvörðun um afslætti af gatnagerðargjöldum með ákveðin markmið í huga og er sú ákvörðun alla jafna tekin í tengslum við fjárhagsáætlanagerð ár hvert. Ástæður fyrir afslætti geta til að mynda verið efling brothættrar byggðar, landfræðilegar aðstæður, þétting byggðar eða brýn húsnæðisþörf.

Við úthlutun lóða leggst á lóðaúthlutunargjald samkvæmt gjaldskrá og er það óafturkræft. Gatnagerðargjald leggst einnig á við lóðaúthlutun en það miðast við stærð og hámarksnýtingarhlutfall lóðarinnar. Unnt er að fá það endurgreitt sé lóðinni skilað. Hægt er að sækja um greiðslufrest á gatnagerðargjaldi og eru þrír valmöguleikar í boði:

Leið 1:

  • Eindagi 1. 25% gjalds er 30 dögum eftir gjalddaga
  • Eindagi 2. 25% 6 mánuðum eftir gjalddaga
  • Eindagi 3. 50% 12 mánuðum eftir gjalddaga

Leið 2:

  • Eindagi 1. 25% gjalds er 30 dögum eftir gjalddaga
  • Eindagi 2. 75% 6 mánuðum eftir gjalddaga.

Leið 3:

  • Eindagi 1. 50% gjalds er 30 dögum eftir gjalddaga
  • Eindagi 2. 50% 12 mánuðum eftir gjalddaga

Óski umsækjandi eftir afslætti af gatnagerðargjöldum vegna dýptar í samræmi við gjaldskrá skipulags- og byggingarmála í Múlaþingi skal hann hafa samband við verkefnastjóra fjármála á umhverfis- og framkvæmdasviði áður en fyllt er í grunn svo hægt sé að staðfesta dýpt með innmælingu.

Afturköllun lóðar

Umsækjandi skal hafa sótt um og fengið útgefið byggingarleyfi á lóð innan 12 mánaða frá ákvörðun um lóðarúthlutun. Að þeim tíma liðnum fellur úthlutun úr gildi án frekari fyrirvara nema umsækjandi hafi sótt um frest til skipulagsfulltrúa, sem er heimilt að framlengja frestinn í eitt skipti um allt að 12 mánuði.

Skipulagsfulltrúi getur afturkallað úthlutun lóðar, ef lóðarhafi heldur ekki byggingar- og skipulagsskilmála eða greiðslur komast í 30 daga vanskil.

Við afturköllun úthlutunar skulu innborguð gatnagerðargjöld endurgreidd án vaxta og verðbóta. Byggingarleyfisgjöld, lóðarúthlutunargjöld og önnur þjónustugjöld eru ekki endurgreidd.

Lóðaleigusamningur

Lóðaleigusamningur er gerður þegar undirstöður burðarvirkis eru fullgerðar. Umhverfis- og framkvæmdaráð getur heimilað undanþágu frá þessu ákvæði við sérstakar aðstæður.

Gjaldskrá fyrir skipulags- og byggingarmál

Gjaldskráin birt í stjórnartíðindum

1. gr. Lög og samþykktir.

Gjaldskrá þessi er sett með vísun í lög um gatnagerðargjald nr. 153/2006 og reglugerð um gatnagerðargjald nr. 543/1996, 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, skipulagslög nr. 123/2010.

2. gr. Gatnagerðargjald.

Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum í þéttbýli í Múlaþingi skal greiða gatnagerðargjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sbr. 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006.

Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja. Gjaldinu skal þannig m.a. varið til að undirbyggja götur, leggja bundið slitlag, gang­stéttar, götulýsingu, umferðareyjar og þess háttar þar sem gert er ráð fyrir því í skipulagi.

Byggingarleyfisgjöld eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í gatnagerðargjaldi. Stofngjöld veitna eru ekki innifalin í gagnagerðargjaldi.

3. gr. Gjaldstofn gatnagerðargjalds og tímamark álagningar.

Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýrra bygginga og hins vegar vegna stækkunar á eldra húsnæði.

Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er hámarksnýtingarhlutfall tiltekinnar lóðar. Gjaldstofn­inn er ákveðinn á eftirfarandi hátt:

  1. Þegar sveitarfélagið úthlutar eða selur lóð eða byggingarrétt á lóð er gatnagerðargjald lagt á í samræmi við hámarksfermetrafjölda þeirrar byggingar sem heimilt er að reisa á viðkom­andi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi eða samkvæmt lóðablaði. Nýtingarhlutfall skal að lágmarki vera 0,25. Þó skal aldrei miða álagninguna við hærra nýtingarhlutfall en 0,4 fyrir einbýlishús.
  2. Þegar gatnagerðargjald verður ekki lagt á skv. a-lið, eða ef byggingarleyfi er veitt fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, er við útgáfu bygg­ingar­leyfis lagt á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem bygg­ingar­leyfi tekur til. Gildir þá jafnframt:
    1. Gatnagerðargjald skal innheimt vegna stækkunar byggingar sem nemur fermetrafjölda stækkunar.
    2. Gatnagerðargjald skal innheimt ef reist er ný og stærri bygging í stað annarrar á sömu lóð sem stækkuninni nemur. Gildir þessi regla um byggingar sem samþykkt er byggingaleyfi fyrir allt að fimm árum eftir að leyfi er gefið út fyrir niðurrifi byggingar. Að öðrum kosti skal greiða fullt gatnagerðargjald.
    3. Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun hús­næðis þannig að hún færist í hærri gjaldflokk, sbr. 4. gr., skal greiða gatnagerðargjald sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.
  3. Sveitarfélagið getur með samkomulagi við eigendur óbyggðra lóða eða lóðasvæða í einka­eigu innan þéttbýlismarka samið um að sveitarfélagið vinni að gatnagerð fyrir viðkomandi lóðir og fari með skyldur vegna gatnakerfisins í samræmi við gildandi lög og skipulag. Sveitar­félagið skal þá verða eigandi að landi undir gatnakerfið. Sveitarfélagið skal með sér­stakri ákvörðun um úthlutun lóðar við gatnakerfi sveitarfélagsins leggja á gatnagerðar­gjald í sam­ræmi við a-lið. Ákvörðun um úthlutun lóðar við gatnakerfi sveitarfélagsins skal fara fram þegar aðkoma að lóð um gatnakerfið er greið.

Hafi gatnagerðargjald verið lagt á í samræmi við a-lið 3. mgr. skal ekki greitt af viðbyggingu nema að því leyti sem viðbyggingin felur í sér hærra nýtingarhlutfall en fyrri álagning byggðist á, þó ekki í tilvikum þar sem hámark skv. 1. mgr. 4. gr. um einbýlishúsalóðir á við.

4. gr. Útreikningur gatnagerðargjalds.

Við álagningu gatnagerðargjalds skv. a-lið 2. mgr. 3. gr. skal gatnagerðargjald reiknað út frá fermetrafjölda skv. tilgreindu hámarksnýtingarhlutfalli lóðar. Sé þess óskað að byggja meira en nýtingarhlutfall lóðar segir til um skal greiða gatnagerðargjald miðað við það nýtingarhlutfall. Um einbýlishúsalóðir gildir þó alltaf, að aldrei skuli miða álagningu við hærra nýtingarhlutfall en 0,4.

Við álagningu gatnagerðargjalds skv. b-lið 2. mgr. 3. gr. skal gatnagerðargjald reiknað út frá raun­fjölda fermetra byggingar, hvort sem um er að ræða viðbyggingu, endurbyggingu, breytingu notk­unar eða önnur tilvik.

Verðgrunnur fyrir gatnagerðargjald er verð fyrir fermetra í vísitöluhúsi fjölbýlis samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands frá 20. desember 2021. Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir:

  Einbýlishús með eða án bílageymslu 6,50%

  Par-, rað- og keðjuhús, með eða án bílageymslu 6,00%

  Fjölbýlishús með eða án bílageymslu 4,00%

  Verslunar-, skrifstofu- og þjónustuhúsnæði 5,20%

  Iðnaðar-, athafnar- og geymsluhúsnæði 4,50%

  Aðrar byggingar 3,00%

5. gr. Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds.

Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar:

  1. Óeinangruð hús, minni en 15 fermetrar.
  2. Óupphituð svalaskýli íbúðarhúsa sem eru 20 fermetrar eða minni.

6. gr. Sérstök lækkunarheimild gatnagerðargjalds.

Umhverfis- og framkvæmdaráði er heimilt skv. 6. gr. laga nr. 153/2006 að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður svo sem vegna þétt­ingar byggðar samkvæmt skilgreiningu í aðalskipulagi, sérstakrar atvinnuuppbyggingar, lítillar ásóknar í viðkomandi lóð eða eftirspurnar eftir leiguhúsnæði.

Birta skal lista yfir lóðir sem eru til úthlutunar. Á listanum skulu koma fram upplýsingar um hlutfall afsláttar af viðkomandi lóðum, sem ákveðið hefur verið á grunni 1. mgr.

Umhverfis- og framkvæmdaráði er enn fremur heimilt að lækka eða fella niður gjöld vegna sér­hæfðs félagslegs húsnæðis, svo sem sambýla fyrir fatlað fólk, þjónustuíbúða fyrir aldraða og félags­legs leiguhúsnæðis enda sé slíkt húsnæði í eigu stofnana, félagasamtaka eða félaga sem ekki eru rekin í ágóðaskyni. Þinglýsa skal kvöð á umrætt húsnæði um að greiða skuli gatnagerðargjald af því ef það fellur af einhverjum ástæðum ekki lengur undir ákvæði þetta.

Sé meðaldýpt jarðvegs nýskipulagðra og óúthlutaðra byggingarlóða á burðarhæfan jarðveg meiri en 2 metrar frá botnplötu (lægsta gólfi) húss er veittur afsláttur af gatnagerðargjaldi samkvæmt neðan­greindu:

Dýpt undir gólfplötu:

  1. Fyrir hverja 10 cm neðan 2 m frá botnplötu (lægsta gólf) reiknast afsláttur upp á 2%. Heildar­afsláttur verður þó aldrei hærri en 75% af gatnagerðargjaldi lóðar.
  2. Við ákvörðun jarðvegsdýptar niður á burðarhæfan jarðveg skal miða við upplýsingar um leiðsögukóta húss og jarðvegsdýpt skv. mælingu sem staðfestist af starfsmanni byggingarfulltrúa Múlaþings.

Afsláttur skv. 4. mgr. er ekki veittur af lóðum á svæðum sem skilgreind eru sem miðbæjarsvæði í aðalskipulagi.

7. gr. Gjalddagar og greiðsluskilmálar.

Gjalddagi gatnagerðargjalds er við lóðarúthlutun. Gjalddagi gatnagerðargjalds í öðrum tilvikum en við úthlutun lóðar miðast við útgáfu byggingarleyfis. Eindagi gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er 30 dögum eftir gjalddaga.

Að beiðni greiðanda er heimilt að seinka eindaga gatnagerðargjalds þannig að eindagi allt að 75% gjaldsins sé 6 mánuðum eftir gjalddaga og eindagi allt að 50% gjaldsins sé 12 mánuðum eftir gjalddaga.

8. gr. Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

Lóðarhafi leigulóðar og eigandi eignarlóðar ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

9. gr. Endurgreiðsla gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:

  1. Ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð eða fellur niður, sbr. reglur sveitarfélagsins um úthlutun lóða.
  2. Ef gatnagerðargjald hefur verið greitt í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, en leyfið fellur úr gildi.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt innan 90 daga, vegna endurgreiðslu skv. a-lið 1. mgr. Sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á í tengslum við útgáfu byggingarleyfis sbr. b-lið 1. mgr. en þá skal gatnagerðargjald endurgreitt innan 90 daga frá því að byggingarleyfishafi hefur sannanlega krafist endurgreiðslu.

Um endurgreiðslu fer að öðru leyti skv. 9. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006, sbr. breytingalög nr. 6/2009.

Endurgreiðsla gatnagerðargjalds vegna lóða sem úthlutað var eða byggingarleyfi veitt á, fyrir gildistöku laga nr. 6/2009 þann 4. mars 2009, skal verðbætt, án vaxta, miðað við vísitölu neysluverðs frá greiðsludegi til endurgreiðsludags.

10. gr. Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjald.

Um samninga um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við Múlaþing og forvera þess fyrir gildistöku gjaldskrár þessarar, svo og skilmála varðandi gatnagerðargjald, sem sveitarstjórn hefur sett fyrir sömu tímamörk og lóðarhafi og lóðareigandi hafa undirgengist, fer eftir þágildandi gjaldskrám.

11. gr. Uppbyggingargjald vegna svæða utan þéttbýlis.

Af leigulóðum utan þéttbýlis í Múlaþingi þar sem ekki er lagt á gatnagerðargjald, en sveitarfélagið kemur að uppbyggingu gatna og úthlutar leigulóðum, skal greiða uppbyggingargjald samkvæmt gjaldskrá þessari. Fjárhæð gjaldsins vegna hverrar lóðar reiknast skv. 4. gr. Eindagi gjalds í heild er 30 dögum eftir úthlutun lóðar. Greiðsludreifing er ekki heimil. Byggingarleyfisgjöld og stofngjöld veitna eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í lóðargjaldi. Að öðru leyti gilda sömu ákvæði um uppbyggingargjald og gatnagerðargjald, sbr. 2.–9. gr.

12. gr. Afsláttur á árinu 2026.

Ákvörðun um afslætti af gatnagerðargjöldum og skilyrði fyrir þeim, sbr. 12. gr. laga um gatna­gerðargjald nr. 153/2006, er tekin af umhverfis- og framkvæmdaráði og staðfest af sveitarstjórn.

13. gr. Gjöld vegna byggingarleyfis og -heimildar.

Fyrir hverja framkvæmd sem er háð byggingarheimild eða -leyfi skal innheimt viðeigandi gjald. Innifalið í gjaldinu er lögboðin meðferð byggingaerinda, lóðarblað (einungis á úthlutuðum lóðum frá Múlaþingi), ein yfirferð aðaluppdrátta og séruppdrátta, útmæling í þéttbýli fyrir lóð, byggingarreit, húsi og hæðarkóta, tvær úttektir og eftirlit byggingarfulltrúa samkvæmt bygg­ingarreglugerð nr. 112/2012.

 Tegund byggingar

Kr.

 Flokkur A: Íbúðar- og frístundahúsnæði

 

 1. Einbýlishús

270.700

 2. Par-, rað-, tvíbýlis- og keðjuhús, pr. íbúð

230.200

 3. Fjölbýlishús, pr. íbúð

135.300

 4. Frístundahús

189.600

 Flokkur B: Atvinnu- og þjónustu- og stofnanahúsnæði

 

 1. Gólfflötur allt að 500 fermetrar

270.700

 2. Gólfflötur á bilinu 501-1000 fermetrar

541.500

 3. Gólfflötur yfir 1000 fermetrar

812.200

 Flokkur C: Önnur hús, hvers konar viðbyggingar, bílgeymslur og gripahús

 

 1. Nýbygging eða viðbygging allt að 80 fermetrar

135.300

 2. Nýbygging eða viðbygging frá 81-500 fermetrum

243.600

 3. Nýbygging eða viðbygging frá 501-2.000 fermetrum

473.800

 4. Nýbygging eða viðbygging yfir 2.000 fermetrum

812.200

 Flokkur D: Annað

 

 1. Breytingar á mannvirki: útlitsbreytingar og/eða innra skipulag yfir 5% af hjúpfleti.

135.300

 2. Breyting á mannvirki: minniháttar breytting (t.d breytt notkun)

81.200

 3. Niðurrif eða afskráning mannvirkja

47.200

 4. Endurnýjun byggingarleyfis eða -heimildar

20.300

14. gr. Afgreiðslu- og þjónustugjöld vegna mannvirkjamála.

Gjalddagi afgreiðslu- og þjónustugjalda vegna mannvirkjamála miðast við útgáfu viðkomandi vottorða og er ákveðinn samhliða því að önnur þjónusta er veitt.

Tegund þjónustu

Gjald í kr.

Athugasemdir

1

Eftirlit, úttekt og skráning vegna lausafjármuna í óleyfi

47.300

Eftirlit, úttekt og skráning byggingarfulltrúa vegna geymslu lausafjármuna, sbr. 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012

2

Útgáfa stöðuleyfis

52.800

Útgáfa stöðuleyfis, sbr. 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012, í allt að 12 mánuði

3

Lóðarúthlutunargjald

61.700

Greiðist við úthlutun lóðar og er óendur­kræft, þó að úthlutun gangi til baka

4

Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt

37.000

T.d. vegna byggingarstiga, stöðu­úttektar, byggingarstjóra- eða meistaraskipta

5

Fokheldis- og/eða flutningsvottorð

37.000

 

6

Öryggis- og/eða lokaúttekt

47.200

 

7

Eignaskiptayfirlýsingar – samþykkt og skráning

20.300

 

8

Umsagnir vegna leyfisveitinga

37.000

T.d. umsagnir vegna rekstrar- og vínveitingaleyfis o.fl.

9

Yfirferð aðaluppdrátta

30.400

Umfram eina sem er innifalin í gjaldi skv. 12. gr.

10

Yfirferð séruppdrátta

20.300

Umfram eina sem er innifalin í gjaldi skv. 12. gr.

11

Umsýslugjald vegna stofnunar lóða á landi í einkaeigu eða staðfestingar á landamerkjum.

40.700

 

12

Umsýslugjald vegna breytinga á lóðum í eigu Múlaþings að beiðni lóðarhafa.

40.700

Ný merkjalýsing

13

Útlagður kostnaður vegna aðkeyptrar vinnu eða þjónustu.

 

Samkvæmt reikningi, t.d. vegna þinglýsingar, yfirferð séruppdrátta, yfirferð eignaskiptayfirlýsingar

14

Lágmarksgjald vegna móttöku byggingarleyfisumsóknar

20.300

Ef hætt er við útg. byggingarleyfis skal innheimta lágmarksgjald.

15

Staðbundin viðurkenning iðnmeistara eða á starfsemi byggingarstjóra

20.300

 

16

Tímagjald skipulags- og byggingarfulltrúa

20.300

Gjald pr. klst.

17

Grenndarkynning

43.900

 

Gjöld skv. 13. og 14. grein eru óendurkræf þótt lóðarúthlutun og/eða byggingarleyfi eða byggingarheimild falli úr gildi.

15. gr. Gjöld vegna framkvæmdaleyfis og -heimildar.

Innheimta skal gjald fyrir hverja þá framkvæmd sem leyfi er gefið út samkvæmt eftirfarandi töflu.

Tegund þjónustu

Gjald í kr.

Athugasemdir

1

Afgreiðslugjald

8.700

 

2

Framkvæmdarleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 111/2021

175.800

 

3

Framkvæmdarleyfi – aðrar framkvæmdir

87.900

 

4

Framkvæmdarheimild – minni framkvæmdir

37.000

 

5

Tilkynnt framkvæmd

20.300

 

6

Eftirlit umfram það sem er innifalið í framkvæmdarleyfisgjaldinu

20.300

Tímagjald aðkeypt vinna, skv. reikningi skipulagsfulltrúa og/eða aðkeypt vinna skv. reikningi

7

Grenndarkynning

43.900

 

16. gr. Gjöld vegna vinnu eða breytinga á skipulagsáætlunum.

Sé þörf á að vinna skipulagsáætlun eða gera breytingu á henni vegna leyfisskyldra framkvæmda getur sveitarstjórn innheimt gjald fyrir skipulagsvinnu sem nauðsynleg er vegna þeirrar fram­kvæmdar, samkvæmt eftirfarandi töflu. Gjaldið skal ekki vera lægra en það viðmiðunargjald sem fram kemur í gjaldskrá, né hærra en nemur raunverulegum kostnaði við skipulagsgerð, kynningu og auglýsingu skipulagsáætlunar.

Gjalddagi gjalda vegna skipulagsáætlana miðast við það þegar vinna fer fram og/eða kostnaður fellur til.

Tegund þjónustu

Gjald í kr.

Athugasemdir

 

Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga:

 

 

1

Afgreiðslugjald

8.700

 

2

Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga

 

Aðkeypt vinna skv. reikningi

3

Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga

211.000

 

4

Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga

123.000

 

 

Kostnaður vegna deiliskipulags:

 

 

1

Afgreiðslugjald

8.700

 

2

Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga

 

Aðkeypt vinna skv. reikningi

3

Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga

211.000

 

4

Veruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti sbr. 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga

 

Aðkeypt vinna skv. reikningi

5

Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna verulegra breytinga sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga

123.000

 

6

Óveruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti sbr. 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga

 

Aðkeypt vinna skv. reikningi

7

Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga

87.900

 

17. gr. Heimildarákvæði.

Sveitarstjórn er heimilt að undanþiggja einstök hverfi, götur eða landsvæði ákvæðum 3. gr. að öllu leyti ef sveitarfélagið semur við einn og sama framkvæmdaraðila að taka að sér að byggja öll mannvirki á svæðinu og ganga að fullu frá götum, bifreiðastæðum, opnum svæðum o.s.frv. Í slíkum tilfellum skal framkvæmdaraðili greiða sveitarsjóði sem nemur að minnsta kosti 15% af útreiknuðu samanlögðu gatnagerðargjaldi til að standa straum af kostnaði við tengigötur. Sveitarsjóður skal eftir sem áður yfirtaka rekstur þeirra gatna sem lagðar eru með framangreindum hætti.

18. gr. Ýmis ákvæði.

Öll gjöld önnur en gatnagerðargjald samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar september 2025, grunnur 2009, 200,9 stig. Endurreikna skal gjöldin í upphafi hvers almanaksárs, á grundvelli vísitölu byggingarkostnaðar í september og gilda til loka viðkomandi árs.

Upphæð gjalda skv. 13. og 14. gr. skal taka mið af kostnaði við þjónustu og einstök verkefni og skal byggð á rekstraráætlun þar sem rökstudd eru þau atriði sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá kostnaður.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði tryggð með lögveðs­rétti í viðkomandi fasteign og eru aðfararhæf skv. 10. tl. 1. mgr. laga um aðför nr. 90/1989. Framkvæmdaleyfisgjöld og gjöld vegna skipulagsvinnu njóta þó ekki lögveðsréttar. Séu gjöld ekki greidd á eindaga skulu reiknast dráttarvextir frá gjalddaga, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Kostnaður lóðarhafa vegna lóðar sem er skilað eða byggingarleyfi afturkallað, vegna atriða er varða lóðarhafa, svo sem hönnunar- og rannsóknakostnaður á lóðinni eða framkvæmdir áður en byggingarleyfi er gefið út, er ekki endurgreiddur af sveitarfélaginu. Staða lóðarhafa fer þá eftir gild­andi samþykktum og verklagsreglum vegna lóðaskila eða öðrum ákvörðunum sveitarstjórnar.

Sé lóð afturkölluð eða byggingarleyfi fellt úr gildi eftir að undirstöður eru fullgerðar, eða á síðari stigum byggingarframkvæmda, skal dómkveðja tvo matsmenn til að verðleggja þær fram­kvæmdir sem unnar hafa verið, enda hafi þær verið teknar út og viðurkenndar af byggingarfulltrúa. Kostnað vegna matsins greiða sveitarfélagið og lóðarhafi að jöfnu. Múlaþing skal leysa til sín lóðina með mannvirkjum á grundvelli mats hinna dómkvöddu matsmanna að frádreginni hlutdeild lóðarhafa í kostnaði vegna matsgerðarinnar.

19. gr. Samþykkt og gildistaka.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 12. nóvember 2025, öðlast gildi við birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda. Við gildistöku þessarar gjaldskrár fellur úr gildi eldri gjaldskrá nr. 1473/2024.

 

Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 12. nóvember 2025

Síðast uppfært 05. júlí 2024
Getum við bætt efni þessarar síðu?