Svavar Gunnþórsson fyrrum bóndi á Hreimsstöðum í Hjaltastaðarþinghá fagnaði 100 ára afmæli sínu sunnudaginn 15. nóvember 2026. Svavar er íbúi á hjúkrunarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum og hélt upp á daginn þar, fyrst með hangikjöti í hádeginu og síðan rjómatertu í kaffinu.
Svavar fæddist á Hreimsstöðum og er næstyngstur átta systkina. Eiginkona hans var Helga Magnúsdóttir en hún lést árið 2016. Þau Svavar og Helga eignuðust fjóra syni, Borgþór, Magnús Rúnar, Kristján Hreiðar og Jóhann Pál. Meðfram búskapnum vann Svavar ýmis störf, eins og við vegagerð, í síld, byggingarvinnu og við slátrun.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings leit við hjá Svavari í hádeginu og færði honum blóm í tilefni dagsins. Svavar er við nokkuð góða heilsu og ræddi við sveitarstjóra um árin sem hann var bóndi á Hreimsstöðum en hann sagði að á langri ævi væri það tíminn sem stæði upp úr. Hann sagðist einnig una sér vel á Dyngju í dag og hlakkaði til að eyða afmælisdeginum með sínu nánasta fólki.
Hjartanlega til hamingju með 100 árin kæri Svavar!