Fara í efni

Ársreikningur Múlaþings 2025

12.03.2026 Fréttir

Sveitarstjóri kynnti helstu stærðir í ársreikningi Múlaþings fyrir árið 2025 á fundi sveitarstjórnar 11. mars síðastliðinn þegar ársreikningurinn var lagður fram til fyrri umræðu. „Í heild sýnir ársreikningurinn að rekstur sveitarfélagsins stendur á traustum grunni þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi,“ sagði Dagmar Ýr í lok kynningar sinnar.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og er áætlað að seinni umræða fari fram miðvikudaginn 15. apríl 2026.

Helstu lykiltölur eru eftirfarandi:

  • Rekstrarniðurstaða A og B hluta samstæðureiknings Múlaþings var jákvæð um 224 milljónir króna á árinu 2025 en rekstrarniðurstaða eingöngu A hluta var neikvæð um 372 milljónir króna.
  • Framlegð/EBITDA það er rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði, samstæðu A og B hluta nam 1.454 milljónum króna eða um 12,8% í hlutfalli af rekstrartekjum. Til samanburðar nam EBITDA í samstæðureikningi 1.734 milljónum króna á árinu 2024 eða 16,2%. Skýringarnar á þessum breytingum milli ára felast fyrst og fremst í samdrætti í tekjum miðað við áætlun, auknum launakostnaði og hækkun lífeyrisskuldbindingar.
  • Tekjuaukning milli ára var 6% á meðan hækkun í launakostnaði var 12%. Launakostnaður var 62% af heildartekjum árið 2025 miðað við 59% árið á undan. Hækkun í kjarasamningum skýrir hækkandi hlutfall launakostnaðar og þá lækkuðu tekjur vegna sameiningarframlags frá jöfnunarsjóði um ríflega 200 milljónir milli ára.
  • Annar rekstrarkostnaður stóð í stað milli ára en fór þó fram úr væntingum miðað við áætlun ársins. Hlutfall annars rekstrarkostnaðar af heildartekjum nam 31% sem er áþekkt hlutfall og síðustu ár. Verðbólga mældist hærri árið 2025 en gert var ráð fyrir í áætlun.
  • Fjármagnsliðir námu 624 milljónum króna í samstæðu A og B hluta árið 2025 en námu 735 milljónum árið á undan.
  • Veltufé frá rekstri nam 1.210 milljónum króna á árinu 2025 í samstæðu A og B hluta eða 10,6% í hlutfalli af rekstrartekjum. Til samanburðar nam veltufé frá rekstri A og B hluta á árinu 2024 1.975 milljónum króna eða 18,4% sem skýrðist af stórum hluta á sölu eigna skólaskrifstofu Austurlands.
  • Eigið fé var jákvætt í árslok 2025 um 4.557 milljónir króna í samstæðu A og B hluta að teknu tilliti til hlutdeildar minnihluta.
  • Skuldir og skuldbindingar samstæðu A og B hluta námu í árslok 2025 um 13.939 milljónum króna og hækkuðu um 564 milljónir króna á árinu. Skuldaviðmið samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið fyrir A og B hluta nam 92% í árslok 2025 samanborið við 91% í árslok 2024. Viðmiðið í reglugerðinni er að sveitarfélög þurfa að vera undir 150%. Skuldahlutfall samstæðunnar lækkar milli ára og fer úr 125% í 122%.
  • Þrátt fyrir neikvæða rekstrarafkomu A hluta árið 2025 eru jákvæð teikn á lofti þar sem samstæðan stenst fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga og hefur verið að bæta sig þar á síðustu árum. Þá líta áætlanir fyrir árið 2026 ágætlega út og gert ráð fyrir jákvæðri afkomu í bæði A og B hluta á þessu ári. Helsti óvissuþátturinn er þó þróun verðbólgu og verðlags.
  • Í heild sýnir ársreikningurinn að rekstur sveitarfélagsins stendur á traustum grunni þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi. Verkefnið fram undan er að halda áfram að styrkja reksturinn, halda utan um kostnað og skapa svigrúm til áframhaldandi uppbyggingar í þjónustu við íbúa Múlaþings.

Nánari upplýsingar veita Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri og Guðlaugur Sæbjörnsson sviðsstjóri fjármála.

Ársreikningur Múlaþings 2025 fyrri umræða

Ársreikningur Múlaþings 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?