Kjörskrár vegna sveitarstjórnar- og heimastjórnarkosninga, sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026, munu liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofum Múlaþings á Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum og Seyðisfirði á opnunartíma hverrar skrifstofu frá og með fimmtudeginum 30. apríl til og með föstudagsins 15. maí 2026. Kjörskránni er skipt upp á hvert hinna eldri sveitarfélaga, þannig að kjósendur eru skráðir á kjörskrá þar sem þeir áttu skráð lögheimili 38 dögum fyrir kjördag, það er þann 8. apríl 2026.
Athygli er vakin á því að kjósendur geta á einfaldan hátt kannað skráningu sína á kjörskrá inni á vef Þjóðskrár Íslands.
Óskum um leiðréttingar á kjörskrá skal komið á framfæri við viðkomandi sveitarstjórnarskrifstofu eins fljótt og unnt er. Tekið skal fram að óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hafði ekki borist Þjóðskrá fyrir 8. apríl 2026.
Kjörgengir til heimastjórnar eru allir íbúar á kjörskrá í Múlaþingi, hver samkvæmt kjörskrá í sinni „heimasveit“, það er í hverju hinna eldri sveitarfélaga. Hver kjósandi kýs einn aðalmann í heimastjórn af kjörskrá í sinni „heimasveit“. Kjósandi skrifar á sérstakan kjörseðil fullt nafn og heimilisfang þess sem hann kýs. Til þess að fyrirbyggja tafir við atkvæðagreiðslu eru kjósendur hvattir til þess að kynna sér, áður en komið er á kjörstað, hvert er heimilisfang þess er hann hyggst kjósa í heimastjórn. Á vefsíðu Múlaþings er að finna nánari upplýsingar um heimastjórnir og sýnishorn af kjörseðli til heimastjórnar auk annars efnis er kosningarnar varðar.
Kjörstaðir við sveitarstjórnar- og heimastjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026 verða sem hér segir:
- Borgarfjörður eystri: Grunnskólinn á Borgarfirði. Frá klukkan 09:00 til klukkan 17:00
- Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00
- Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilsstöðum. Frá klukkan 09:00 til klukkan 22:00
- Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði. Frá klukkan 10:00 til klukkan 22:00
Kjördeildir við sveitarstjórnarkosningarnar verða fimm talsins, tvær á Egilsstöðum vegna Fljótsdalshéraðs en ein í hverju hinna þriggja sveitarfélaganna. Kjördeildirnar á Fljótsdalshéraði skiptast þannig: Í kjördeild nr. 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum M. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum N – Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og íbúar í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.
Kjósendur eru minntir á að hafa persónuskilríki sín tiltæk á kjörstað.
Á kjördag, meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt á kjörstað í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Símanúmer yfirkjörstjórnar á kjördag eru 865-8954 (Stefán), 895-9972 (Björn) 863-3636 (Arna), tölvupóstfang til notkunar á kjördag: kjorstjorn@me.is.
Talning atkvæða fer fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum og hefst að kjörfundi loknum.
Nánari upplýsingar um kosningarnar má finna hér, en einnig má finna upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu hér.
Yfirkjörstjórn í Múlaþingi, 27. apríl 2026.
Stefán Þór Hauksson, Arna Soffía Dal Christiansen, Björn Aðalsteinsson