Þann 5. nóvember síðastliðinn var farsældardagur Austurlands haldinn á Reyðarfirði. Þar komu saman þeir aðilar úr fjórðungnum sem starfa við farsæld barna og miðluðu reynslu sinni og sóttu sér frekari þekkingu.
Markmið dagsins var að varpa ljósi á stöðu barna í fjórðungnum og ræða innleiðingu á farsældarlögunum og reynslu af samstarfi þeirra aðila sem koma að þjónustu við börn og fjölskyldur.
Samstarf gott og kerfið einfaldara
Sameiginlegur rauður þráður dagsins var mikilvægi þess að ólík þjónustukerfi vinni saman að velferð barna og að í samstarfinu séu barnið og fjölskyldan ávallt í miðjunni.
Það sem gengur vel er meðal annars að samstarf milli kerfa hefur eflst og einfaldast á marga vegu, þó enn séu tækifæri til úrbóta á einhverjum þáttum þess.
Björg Eyþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá HSA, sagði „Öll samvinna við annað fagfólk er auðveldari og upplifun okkar er sú að börn og fjölskyldur séu að fá markvissari og betri þjónustu. Vinnan okkar er skilvirkari og við erum fljótari að leysa málin hvort sem þau eru innanhúss eða ná til annarra fagstétta.“
Fjarlægð milli byggðakjarna, skortur á fjölbreyttum úrræðum og starfsmannabreytingar þvert á stofnanir sem geta haft áhrif á samfellu þjónustunnar eru meðal þeirra áskorana sem voru ræddar á deginum. Niðurstöður rannsókna minna jafnframt á að sérstaklega þarf að huga að líðan eldri grunnskólabarna og tryggja að börn hafi aðgang að traustum fullorðnum einstakling og viðeigandi stuðningi.
Helga Sjöfn Hrólfsdóttir, ráðgjafi hjá Múlaþingi, sagði að þrátt fyrir takmarkaðra aðgengi að fjölbreyttum úrræðum væri mikill vilji til að koma til móts við þarfir barna og fjölskyldna. „Margir leggja sig fram, sýna sveigjanleika og teygja sig langt til að koma til móts við þarfir barna og fjölskyldur þeirra. Við megum þó ekki líta á slíkar lausnir sem sjálfsagðan hlut eða gera ráð fyrir að þær séu alltaf í boði.“
Deildu reynslu og innsýn
Meginniðurstaða dagsins var sú að farsæld barna er sameiginlegt verkefni samfélagsins alls. Mikilvægt er að halda áfram að efla samstarf, hlusta á þarfir barnanna sjálfra og tryggja að réttur stuðningur berist á réttum tíma.
Erindi og reynsla úr farsældarstarfi
Á deginum voru flutt erindi sem vörpuðu ljósi á farsæld barna út frá ólíkum sjónarhornum.
Anna Alexandersdóttir, sviðsstjóri velferðar hjá Múlaþingi og formaður farsældarráðs Austurlands, setti daginn og sleit honum. Nína Hrönn Gunnarsdóttir verkefnastjóri farsældarráðs fór með fundarstjórn.
- Rannsóknir og staða barna: Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Háskóla Íslands og faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, kynnti niðurstöður grunnskólakönnunar ársins 2026. Niðurstöðurnar sýna að yngri grunnskólabörnum á Austurlandi líður almennt vel, þau eiga góða vini og njóta stuðnings heima fyrir. Staðan er hins vegar flóknari hjá eldri nemendum, þar sem meiri andleg vanlíðan, einmanaleiki og aðrar áskoranir koma fram.
- Samþætt þjónusta og farsældarkerfið: Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældar- og barnaverndarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, fjallaði um innleiðingu samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna undir yfirskriftinni „Varnargarður fyrir börn – virkjum þorpið“. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að hlusta á börn og grípa fyrr inn í með stuðningi áður en vandi þeirra verður meiri. Hann sagði að barnaverndarmálum hefði ekki fjölgað frá árinu 2022.
- Reynsla tengiliðar í grunnskóla: Magna Júlíana Oddsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu Nesskóla, miðlaði reynslu úr skólastarfi og þeirri vinnu sem þar fer fram í þágu farsældar barna.
- Reynsla málstjóra: Ingibjörg Þuríður Stefánsdóttir og Helga Sjöfn Hrólfsdóttir, ráðgjafar hjá Múlaþingi, fjölluðu um reynslu og áskoranir í farsældarstarfi út frá sjónarhorni málstjóra.
Í erindi sínu lýsti Helga Sjöfn því hvernig málstjórar fylgja fjölskyldum í gegnum ólíkar tilfinningar og aðstæður. „Við sjáum von kvikna en líka dofna. Við sjáum létti, þakklæti og traust en líka óöryggi, vanmátt og þreytu. Stundum erum við að hjálpa fjölskyldum að finna vonina aftur. Og kannski er það einn mikilvægasti hluti starfsins okkar: að standa með fjölskyldunum, líka þegar leiðin er erfið.“
- Sjónarhorn heilbrigðisþjónustunnar: Björg Eyþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands, kom inn á reynslu og hlutverk heilbrigðisþjónustunnar í samþættri þjónustu í þágu farsældar barna.
Varðandi áskoranir og tækifæri tengd heilbrigðisþjónustunni þegar kemur að farsældinni sagði Björg:
„Það sem helst hefur reynst heilbrigðiskerfinu áskorun er meðal annars að það er í grunninn mjög formfast. Tilvísanir á milli fagaðila innan heilbrigðiskerfisins hafa hingað til ekki kallað á samþættingu þjónustunnar en ef til vill á eftir að slípa það betur til í verklagi innan kerfisins.“
Hún sagði einnig að skráningar væru áskorun: „Eins og staðan er í dag höfum við enga möguleika til að skrá það að þjónusta við barn sé samþætt í þeim kerfum sem við notum þannig að þær upplýsingar séu aðgengilegar heilbrigðisstarfsmanninum.“
Björg sagði að lausnin gæti falist í „útvíkkuðu hlutverki tengiliðar innan heilbrigðiskerfisins“ og nefndi meðal annars upplýsingagjöf, utanumhald með verklagi og tengingu við önnur kerfi sem bera ábyrgð á farsæld barna.
Þekkingu miðlað og áskoranir og lausnir ræddar
Í lok dagsins fóru þátttakendur vel nestaðir í áframhaldandi vinnu við þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Skilningur og þekking varð enn dýpri og mikilvægi þess að kerfin vinni vel saman og styðji hvert við annað undirstrikað. Þá voru áskoranir dregnar fram þannig að hægt er að vinna að því að ráða á þeim bót í áframhaldandi samvinnu.