Baugur Bjólfs hlaut á dögunum Dezeen verðlaunin í flokki smærri mannvirkja. Verðlaunin eru virt alþjóðleg verðlauna á sviði arkitektúrs, hönnunar og innanhússhönnunar.
Þetta er í níunda sinn sem verðlaunin eru afhent en þau hafa á þeim tíma fest sig í sessi sem mikilvægur mælikvarði á framúrskarandi hönnun og eru eftirsótt viðurkenning fyrir arkitekta og hönnuði.
Í umsögn dómnefndar segir að Baugurinn sé lágstemmt inngrip í náttúruna sem á einfaldan og vandaðan hátt færir gestum nýja upplifun af svæðinu og landslagi þess. Hógvær efnisnotkunin hámarki upplifunina. Baugurinn var ekki bara efstur á blaði hjá dómnefndinni því hann varð einnig hlutskarpastur í kosningu almennings.
Mikil og verðskulduð athygli
Baugur Bjólfs hefur hlotið mikla og verðskuldaða athygli síðan hann var tilbúinn fyrir rúmu ári. Baugurinn hlaut Arcitecture masterprize verðlaunin í flokki almenningsrýma og var bæði tilnefndur til Archello verðlaunanna sem almenningsrými ársins og til Hönnunarverðlauna Íslands í flokknum staður ársins.
Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur sem situr á Bæjarbrún í suðurhlíð fjallsins Bjólfs á Seyðisfirði. Baugurinn er í 640 metra hæð yfir sjávarmáli og frá honum er einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð. Fjallið og baugurinn draga nafn sitt af Bjólfi, landnámsmanni sem getið er í Landnámu og sagan segi að hafi verið heygður í fjallinu.
Aðalhönnuðir mannvirkisins voru þær Ástríður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir frá Arkibygg Arkitektum en verkefnið var unnið í samvinnu við Önnu Kristínu Guðmundsdóttur og Kjartan Mogensen landslagsarkitekta, Auði Hreiðarsdóttur frá ESJA ARCHITECTURE og Arnar Björn Björnsson frá Exa Nordic sem sá um burðarvirkjahönnun. Um framkvæmdir sá MVA á Egilsstöðum.