Útsýnispallurinn Baugur Bjólfs er meðal þeirra verkefna sem koma til greina sem handhafar Archello verðlaunanna 2026 sem almenningsrými ársins (e. public space of the year). Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem baugurinn er orðaður við alþjóðleg verðlaun en nýlega var tilkynnt að hann væri tilnefndur til Dezeen verðlaunanna.
Archello verðlaunin eru alþjóðleg verðlaun á sviði arkitektúrs og hönnunar. Baugurinn er meðal 20 verkefna sem dómnefnd valdi á svokallaðan longlista í flokki almenningsrýma. Af þeim lista munu nokkur verkefni komast í úrslit og að lokum stendur eitt þeirra uppi sem sigurvegari. Fjöldi verkefna eru tekin til skoðunar og því felst mikil viðurkenning í því að vera meðal þeirra 20 sem komast á listann.
Ekki hefðbundinn útsýnispallur
Í umfjöllun um Baug Bjólfs á vef verðlaunanna er fjallað ýtarlega um hönnun hans, efnisval, framkvæmd og áskoranir. Þar kemur fram að hin einfalda hringlaga hönnun mannvirkisins sameini form, virkni og upplifun. Baugur Bjólfs sé ekki hefðbundinn útsýnispallur þar sem gestir komi á ákveðinn stað til að njóta útsýnis heldur bjóði hann upp á ferðalag þar sem útsýnið og upplifunin þróist í hverju skrefi.
Bætt aðkoma
Baugur Bjólfs hefur nú þegar fest sig í sessi sem vinsæll áfangastaður og í haust hefur verið unnið að því að bæta aðkomuna að honum. Búið er að forma bílastæði og setja á þau jöfnunarlag og unnið er að því að lagfæra veginn. Þá er búið að koma upp upplýsingaskiltum, setja yfirborðslag á göngustíga og unnið er að því að koma upp snyrtilegu setsvæði við bílastæðin með hlöðnum vegg og hellulögn.
Nánar um Baug Bjólfs
Baugur Bjólfs situr á Bæjarbrún í suðurhlíð fjallsins Bjólfs á Seyðisfirði. Baugurinn er í 640 metra hæð yfir sjávarmáli og frá honum er einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð. Aðalhönnuðir hans voru þær Ástríður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir frá Arkibygg Arkitektum en verkefnið var unnið í samvinnu við Önnu Kristínu Guðmundsdóttur og Kjartan Mogensen landslagsarkitekta, Auði Hreiðarsdóttur frá ESJA ARCHITECTURE og Arnar Björn Björnsson frá Exa Nordic sem sá um burðarvirkjahönnun. Um framkvæmdir sá MVA á Egilsstöðum.