Fara í efni

Byggðarráð Múlaþings auglýsir til umsóknar styrki til menningarstarfs

15.08.2023 Fréttir

Múlaþing veitir menningarstyrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til almennrar liststarfsemi, viðburða eða verkefna. Umsækjendur skulu tengjast Múlaþingi með búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Múlaþingi eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Múlaþings.

Stefnt er að því að afgreiðsla styrkumsókna liggi fyrir 1. október 2023 en umsóknarfrestur er til og með 12. september 2023. Sótt er um styrk með rafrænum hætti á Íbúagátt sveitarfélagsins og fer innskráning þar fram með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun menningarstyrkja Múlaþings á heimasíðu sveitarfélagsins.

Athugið að breyting hefur orðið á úthlutunarferlinu um menningarstyrki og verða skyndistyrkir ekki afgreiddir. Til úthlutunar verða 1.910.000 kr. Styrkir eru að upphæð 50.000-400.000 kr. Aðilar sem hafa ekki hlotið menningarstyrk Múlaþings í ár eru í forgangi.

Upplýsingar og ráðgjöf veitir Jónína Brá Árnadóttir, verkefnastjóri menningarmála í netfangið jonina.arnadottir@mulathing.is.

 

EN / Múlaþing Executive Board calls for applications for cultural project grants. The application deadline is September 12th 2023.

Múlaþing cultural grant is intended for individuals, groups, associations, companies and institutions for cultural activities, events, or projects. Applicants must be connected to Múlaþing in some way, either through residence, that the event takes place at Múlaþing or includes a promotion for Múlaþing‘s culture.

Grant applications will be processed before Oct. 1st.

To apply please use the municipality Resident Portal (Mínar síður), and log in with Electronic ID or Íslykill.

Applicants are encouraged to familiarise themselves with the rules of Múlaþing‘s cultural grants on the municipality‘s website.

Please note that there has been a change in the allocation process for cultural grants, immediate grants outside of the grant deadline will not be processed. 1.910.000 kr. will be allocated. Grants are in the amount of 50.000-400.000 kr. Applicants that have not received funding from Múlaþing cultural fund will have priority.

For further information or advice please contact Jónína Brá Árnadóttir cultural project manager at jonina.arnadottir@mulathing.is or 4 700 700.

Byggðarráð Múlaþings auglýsir til umsóknar styrki til menningarstarfs
Getum við bætt efni þessarar síðu?