Djúpivogur er aðili að alþjóðlegu Cittaslow samtökunum og leggur áherslu á þau gildi sem þar eru höfð í heiðri, sérkenni svæðisins og menningu þess.
Cittaslow sunnudeginum er fagnað síðasta sunnudag í september á ári hverju í öllum Cittaslow bæjum og borgum um heiminn.
Þá fagna Djúpavogsbúar hæglætinu og því að enginn annar staður er alveg eins og Djúpivogur.
Í ár verður ýmislegt um að vera alla helgina og hægt að fylgjast með á síðu Cittaslow á Djúpavogi.