Regnbogahátíð Hinsegin Austurlands stendur nú sem hæst. Félagið og fleiri aðilar standa fyrir fjölda viðburða um allt Austurland og er Múlaþing þar engin undantekning.
Tónninn var sleginn á Borgarfirði um Bræðsluhelgina þegar Hinsegin Austurland stóð þar fyrir regnbogahátíð þar sem boðið var upp á listasmiðju, regnbogagöngu og hátíðardagskrá þar sem forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, var á meðal gesta.
Í dag grípa Seyðfirðingar boltann og hefja sína Gleðiviku. Hún hefst með skiltagerð fyrir Hýru halarófuna, árlega hinsegin göngu Seyðfirðinga, og á morgun föstudag verður hinsegin kvikmyndakvöld í Herðubíói. Hátíðarhöldin á Seyðisfirði ná hápunkti sínum á laugardaginn þegar regnbogahátíð Hinsegin Austurlands á Seyðisfirði fer fram og hýra halarófan fer um bæinn. Að göngunni lokinni verður boðið upp á hátíðardagskrá þar sem flutt verða ávörp og tónlist auk þess sem heiðursverðlaun Hinsegin Austurlands verða afhent.
Á sunnudaginn verður regnbogamessa í Seyðisfjarðarkirkju og að henni lokinni býður Seyðisfjörður Queer Association í samfélagslautarferð við kirkjuna.
Sama dag verður regnboginn málaður á göngustíginn við Fagradalsbraut á Egilsstöðum og að því loknu verður gengin gleðiganga í Sláturhúsið þar sem flutt verða ávörp og tónlist.
Síðast en ekki síst býður Hinsegin Austurland til opins fundar um hinsegin menningu og stöðu hinseginmála í alþjóðlegu samhengi á mánudaginn. Á fundinum verða flutt fjölbreytt erindi um efnið en hann fer fram í Þingmúla í Valaskjálf og hefst klukkan 20:00.
Nánari upplýsingar um þessa viðburði og fleiri má finna á Facebook síðu Hinsegin Austurlands.